Kolbrún Vaka Helgadóttir frumsýnir þættina
Eitt stykki hönnun, takk á RÚV í kvöld. Um er að ræða heimildaþætti í þremur hlutum sem fjalla um hönnun á Íslandi og
HönnunarMars hátíðina, en hönnuðir og arkitektar marseruðu um Reykjavíkurborg í 10. sinn árið 2018.
Kolbrún Vaka, sem er spyrill, meðframleiðandi og hugmyndasmiður þáttanna, fékk styrk úr
Hönnunarsjóði við gerð þessara þriggja þátta seríu þar sem hún beinir sjónum sínum að lífi og starfi nútíma hönnuða og kafar ofaní HönnunarMars, þessa fjörugu hátíð sem yfirtekur höfuðborgina á hverju ári í mars. Leikstjóri er Janus Bragi Jakobsson.
Meðal þeirra hönnuða koma fram í seríunni eru þær Kristín Karlsdóttir og Valdís Steinarsdóttir hjá Studio Trippin, Búi Bjarmar og verkefni hans Stússað í steininum, Róshildur Jónsdóttir og Snæbjörn Stefánsson auk þess sem skyggnst er ofan í hönnunarhátíðina
HönnunarMars.
Fyrsti þáttur er á dagskrá
í kvöld kl. 20.30 á RÚV og verða næstu tvo fimmtudaga á sama tíma þar eftir.
Þess má geta að Kolbrún Vaka er í viðtali um gerð þáttana í sérútgáfu HA tímaritsins fyrir HönnunarMars sem kemur út viku fyrir hátíðina. Fylgstu með!
Úr þáttunum - Snæbjörn Stefánsson og Róshildur Jónsdóttir.