Fréttir

1.3.2019

Ný nöfn bætast í hóp fyrirlesara á DesignTalks




Dagskrá DesignTalks ráðstefnunnar sem markar upphaf HönnunarMars verður stútfull af innblæstri og Katharine Hamnett, Lucienne Roberts og Brynjar Sigurðarson bætast nú í hóp þeirra sem ætla að miðla visku sinni í Hörpu þann 28. mars.



Katharine Hamnett er frumkvöðull í breska tískuheiminum. Hún stofnaði Katharine Hamnett 1979 og var fyrst allra til að vera útnefnd áhrifamesti fatahönnuður ársins af breska tískuráðinu. Á níunda áratugnum helgaði hún sig nær eingöngu baráttunni fyrir sjálfbærni og siðferði í tískuheiminum en nýlega endurvakti hún fatamerki sitt og heldur áfram baráttunni með stuttermabolum í góðgerðaskyni. Nýleg dæmi eru CHOOSE LOVE, FASHION HATES BREXIT, VOTE TRUMP OUT.



Lucienne Roberts er grafískur hönnuður, stofnandi LucienneRoberts+ og meðstofnandi GraphicDesign&. Verk hennar einkennast af brennandi áhuga á hlutverki grafískrar hönnunar í stóra samhenginu og skilgreiningum á siðferðilegri hönnun. Lucienne hefur gefið út fjölda bóka, hannað umhverfisgrafík og sinnt sýningarstjórn. Síðasta verkefni GD&, sýningin Hope to Nope: Graphics and Politics 2008-18 á London Design Museum laðaði að meira en 30.000 gesti.

 

Brynjar Sigurðarson er handhafi Torsten og Wanja Söderberg verðlaunanna 2018. Hann er hönnuður sem ekki er svo létt að skilgreina, en með eiginkonu sinni Veronika Sedlmar í Studio Brynjar og Veronika vinna þau í ýmsa miðla og með sterka skírskotun í leikhúsheiminn og náttúruna. Verk hans hafa verið sýnd á söfnum og galleríum víða um heim, t.a.m. Gallery Kreo í París og unnið til fjölda verðlauna. Hann hlaut svissnesku hönnunarverðlaunin 2015 og studio Brynjar & Veronika hlaut verðlaunin Swarowski hönnuður framtíðarinnar 2016.


Í næstu viku mun enn bætast í hópinn og við mælum því með að fylgjast með vef og samfélagsmiðlum HönnunarMars fyrir frekari fréttir!

DesignTalks 2019 varpar ljósi á á hlutverk og áhrifamátt hönnunar á tímum stórfelldra breytinga í heiminum og leggur til að "eina leiðin sé upp!”

Viðfangsefnin spanna vítt svið, allt frá hönnun bygginga sem framleiða meiri orku en þær nota, til brautryðjendabaráttu fyrir sjálfbærni í tískuheiminum. Frá möguleikum og áskorunum stafrænna heima, til þáttar grafískrar hönnunar í nýliðnum pólitískum atburðum, að hnattrænum straumum og breytingaöflum. Frá staðbundinni menningu og vannýttum efnivið til búsetu á Mars og alla leið að hönnun nýrra lífvera.
DesignTalks er ætlað að veita hönnuðum og arkitektum, áhrifafólki í samfélaginu, viðskiptum, stjórnvöldum og almenningi, innblástur til samstarfs og framfara.

Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir setur daginn.

Hægt er að tryggja sér miða á Harpa.is og á Tix.is

Dagsetning: 28.mars kl  9:00 – 16:30
Staðsetning: Harpa, Silfurberg

DesignTalks er skipulagt af Hönnunarmiðstöð Íslands og styrkt af Arion banka og Reykjavíkurborg.


















Yfirlit



eldri fréttir