Fréttir

7.2.2019

Hvernig á að ná góðum tökum á sölustarfi erlendis?



Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins býður til fundar í samstarfi við Nýsköpunarnefnd FKA býður til fundar þar sem umfjöllunarefnið er hvernig íslensk fyrirtæki geta náð góðum árangri í sölustarfi erlendis.

Fundurinn fer fram í dag, fimmtudaginn 7. febrúar milli 17 – 19 í Húsi Verslunarinnar, Kringlunni 7, í VR salnum á jarðhæð.

Fjórir öflugir fyrirlesarar sem eiga það sameiginlegt að vera í forsvari fyrir fyrirtæki sem hafa náð góðum árangri í sölustarfi erlendis.

·       Helga Árnadóttir – Tulipop

·       Þorbjörg Arnórsdóttir – Þórbergssetur

·       Eyrún Eggertsdóttir – RóRó

·       Berglind Johansen - BioEffect

Hvernig hafa íslensk fyrirtæki náð tökum á því að selja vörur sínar á stórum markaði þar sem samskiptamynstur eru ef til vill gjörólík því sem gerist á heimamarkaði. Reynslusögur af því sem hefur heppnast vel og líka misheppnast.

Fundarstjóri er Margrét Sanders.
Systrasamlagið sér um veitingarnar.
Aðgangur er ókeypis.

Skráning fer fram hér.


















Yfirlit



eldri fréttir