Orkuveita Reykjavíkur í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands
efnir til lokaðarar hugmyndasamkeppni, að
undangengnu forvali, um sögu- og tæknisýningu í Elliðaárstöð og nánasta
umhverfi hennar, nærliggjandi húsum í eigu OR og tengingu við
útivistarsvæðið í
Elliðaárdal.
Um samkeppnina
Elliðaárdalurinn hefur sérstakan sess í hugum borgarbúa og
fyrir margra hluta sakir. Hann er orðinn eitt vinsælasta útvistarsvæðið að
sumri jafnt sem vetri, þar er veiddur lax í miðri höfuðborg en þar er líka
vagga veitureksturs í borginni. Reykvíkingar sóttu sér drykkjarvatn í
vatnsveituna í Elliðaárnar og endurnýjanleg orka hefur fengist þaðan í formi
rafmagns og heits vatns í hitaveituna um áratugaskeið. Orkuveita Reykjavíkur á
þannig rætur í dalnum.
Markmiðið Orkuveitu Reykjavíkur með þessu verkefni er að fólk
eigi greiðan aðgang að þessu einstaka svæði í borginni sem er í almannaeigu,
auka upplifun og ánægju og miðla fróðleik. Orkuveita Reykjavíkur vill rækta
ræturnar og standa vörð um dalinn, lífríki hans og sögu.
Markmið
Markmið
OR með uppsetningu sögu- og tæknisýningar sem nýti eignir fyrirtækisins í
Elliðaárdal eru einkum þessi:
· Gera mannvirki OR í Elliðaárdal aðgengilegri almenningi.
·
Varpa ljósi á þátt
veitnanna í þróun borgarsamfélagsins
·
Kynna eðli og umfang
núverandi starfsemi OR og dótturfyrirtækjanna; Veitna, Orku náttúrunnar og
Gagnaveitu Reykjavíkur
·
Auka áhuga einkum ungs
fólks á iðn- og tæknistörfum og gera störf í virkjana- og veiturekstri aðlaðandi
fyrir ungt fólk
·
Efla fræðslugildi
Elliðaárdalsins sem útivistarsvæðis
·
Segja frá laxveiðum úr ánum og samspili þeirra við aðrar nytjar
·
Taka upp samstarf við
Borgarsögusafn til að njóta sérfræðiþekkingar starfsfólks þess og nábýlisins
við Árbæjarsafn
·
Finna stað þremur
jarðborum, sem eru skilgreinandi fyrir tæknilega þróun nýtingar jarðhita í stað
kolefnaeldsneytis til húshitunar í landinu
Áherslur dómnefndar
Dómnefnd metur innsendar
tillögur með hliðsjón af samkeppnislýsingu þessari, ásamt keppnisgögnum sem
vísað er til. Við mat á innsendum tillögum horfir dómnefnd einkum til þess
hvernig tillagan kemur á móts við tilgang samkeppninnar eins og þeim er lýst í
markmiðum keppninnar.
·
Tillagan kynnir eðli og umfang núverandi starfsemi OR og
dótturfyrirtækjanna; Veitna, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu Reykjavíkur.
·
Tillagan hefur að leiðarljósi að efla áhuga á þætti
veitureksturs í Elliðaárdal í þróun borgarsamfélagsins á höfuðborgarsvæðinu.
·
Tillagan stuðlar að heildrænni ásýnd mannvirkja, góðum
tengslum mannvirkja við umhverfi sitt og góðum tengingum út í aðra hluta
Elliðaárdals.
·
Tillagan ýtir undir forvitni og fræðslu með nýstárlegum og
gagnvirkum lausnum sem auka áhuga ungs fólks á að starfa að orku- eða
veitumálum.
·
Tillagan ýtir undir notkun vistvænna lausna, í samræmi við
umhverfisstefnu OR samstæðunnar.
Tilhögun samkeppni
Samkeppnin er lokuð
hugmyndasamkeppni að undangengnu forvali sem verkkaupinn, Orkuveita
Reykjavíkur, heldur. Umsókn um þátttöku í samkeppninni er opin hönnuðum,
landslagsarkitektum og arkitektum í samstarfi við aðra fræði- og faghópa og er
sérstaklega hvatt til þverfaglegrar nálgunar. Forvalsnefnd fer yfir allar
innsendar umsóknir og velur úr þeim fjóra til sex þátttakendur í samkeppninni.
Forvalsnefnd mun velja þátttakendur út frá reynslu þeirra og hæfni til að
takast á við úrlausn viðfangsefnis samkeppninnar. Þar verður horft til fyrri
verka, reynslu einstaklinga í teyminu, sem tilnefnt er, auk þess hvernig teymið
er samsett með tilliti til þverfaglegrar þekkingar og bakgrunns. Umsækjendur í
forvali skulu skila inn eftirfarandi gögnum:
·
Ferilskrá verkefnisstjóra/aðalhönnuðar teymis.
·
Lýsingu á fyrri verkum, ásamt myndum.
·
Greinargerð um samsetningu teymis, með tilliti til
þverfaglegrar þekkingar og bakgrunns meðlima. Ferilskrár mega gjarnan fylgja.
·
Greinargerð, hámark 700 orð, þar sem nánar er gerð grein
fyrir umsókn.
Umsækjendur skulu
skila inn umsókn um þátttöku í forvali á rafrænu formi fyrir kl. 16.00
fimmtudaginn 14. febrúar 2019. Umsóknum skal skilað á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is.
Ekki verður tekið við umsóknum er berast eftir tímafrest.
Umsækjendum sem veljast
til þátttöku verður tilkynnt um það af kepppnisritara og trúnaðarmanni
samkeppninnar. Tilkynnt verður opinberlega hverjir veljast til þátttöku í
lokuðu hugmyndasamkeppninni fimmtudaginn 21. febrúar 2019
OR mun greiða hverju
teymi er velst til þátttöku í samkeppninni kr. 1.000.000 fyrir tillöguna, að
því gefnu að hún sé fullnægjandi samkvæmt keppnislýsingu og uppfylli skilyrði
um afhendingu og skilaform. Þóknun verður greidd að samkeppni lokinni, þegar
úrslit liggja fyrir.
OR er fyrirtæki í
almannaeigu og leggur áherslu á að fara vel með fjármuni. Kostnaður við
útfærslu á tillögum skal taka mið af því.
Keppnisgögn
·
Keppnislýsing þessi
·
Kortagrunnur á tölvutæku formi
·
Loftmynd á tölvutæku formi
·
Teikningar af mannvirkjum
·
Ítarefni um OR og forsendur samkeppninnar
·
Heildarstefna OR
·
Umhverfis- og auðlindastefna OR
·
Stefna OR um samfélagsábyrgð
·
Viljayfirlýsing OR og Borgarsögusafns um að varðveita sögu
veitureksturs
Þátttakendur keppni
Hvatt er til þverfaglegrar nálgunar en samkeppnin er opin
hönnuðum, landslagsarkitektum, arkitektum í samstarfi við aðra fræði- og
faghópa. Ef teymi vinnur saman að tillögunni er nóg að einn úr teyminu uppfylli
menntunarkröfur.
Dómnefnd
Þriggja manna
forvalsnefnd fer yfir umsóknir og velur umsækjendur til þátttöku í
samkeppninni. Í forvalsnefnd sitja:
·
Eiríkur Hjálmarsson // OR
·
Guðrún Lilja Gunnlaugsd., vöruhönnuður // Hönnunarmiðstöð Íslands
· Andri Klausen, arkitekt AÍ // Hönnunarmiðstöð Íslands
Í fimm manna dómnefnd
sitja:
·
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi og stjórnarmaður OR, formaður dómnefndar // OR
·
Guðbrandur Benediktsson, forstöðumaður Borgarsögusafns //
OR
·
Heiða Aðalsteinsdóttir, landslagsarkitekt// OR
·
Guðrún Lilja Gunnlaugsd., vöruhönnuður // Hönnunarmiðstöð Íslands
·
Andri Klausen, arkitekt AÍ // Hönnunarmiðstöð Íslands
Dómnefnd er heimilt að
leita eftir áliti utanaðkomandi sérfræðinga um einstök atriði telji hún þess
þörf.
Keppnisritari
Trúnaðar- og umsjónamaður
samkeppninnar er Haukur Már Hauksson.
Að forvali loknu fá
þátttakendur kynningu á starfsemi OR samstæðunnar auk kynningar á þeim
hugmyndum sem lagðar eru til grundvallar framtíðarsýnar svæðisins. Þá verður
boðið til vettvangsferðar þar sem þátttakendum gefst færi á að skoða aðstæður,
bæði innan- og utandyra. Kynning og vettvangsferð verður í höndum fulltrúa OR
og umsjónarmanns samkeppninnar, sem jafnframt er trúnaðarmaður þátttakenda.
Frestur til fyrirspurna
rennur út á miðnætti fimmtudagsins 7. mars 2019. Fyrirspurnum skal beint til
trúnaðarmanns á netfangið: samkeppni@honnunarmidstod.is. Keppnisritari mun leggja afrit af þeim fyrir dómnefnd. Gert
er ráð fyrir að svör við fyrirspurnum liggi fyrir fimmtudaginn 14. mars 2019.
Trúnaðarmaður sendir í framhaldi af því allar fyrirspurnir og svör dómnefndar
við þeim til allra þátttakenda í tölvupósti.
Tungumál
Tungumál samkeppninnar
er íslenska. Öllum tillögum skal skilað á íslensku. Dómnefndarálit verður gefið
á íslensku.
Skilaform og afhending
Tillögum skal skilað
útprentuðum og á pdf-formi á minniskubbi, annars vegar á tillöguörkum til
upphengingar og í greinargerð. Tillöguarkir skulu að minnsta kosti innihalda
eftirfarandi:
·
Yfirlitsmynd
sem sýnir heildarhugmynd (e. concept) fyrir Rafstöðvarreitinn og tengsl hans
við umhverfi sitt og útivistarsvæðið í Elliðaárdal.
·
Yfirlitsmynd sem sýnir heildarhugmynd (e. concept) fyrir innra
skipulag tækni- og sögusýningar í Elliðaárstöð og annarra mannvirkja eftir því
sem við á.
·
Skýringarmyndir, skurðmyndir, fjarvíddar- og
þrívíddarmyndir að vali höfunda.
·
Greinargerð sem nánar er lýst hér að neðan.
Tillögum skal skila á
pdf. formati og útprentuðum á tillöguörkum í stærðinni A1 (594x841 mm) og límdum
á hörð spjöld til upphengingar. Skila má allt að 4 tillöguörkum og skal gera
grein fyrir uppröðun þeirra með númerum í hægra horni niðri. Tillöguarkir skal
hengja lóðrétt hlið við hlið.
Greinargerð skal að
hámarki vera 2.000 orð. Í henni skal að minnsta kosti eftirfarandi koma fram:
·
Meginhugmynd tillögunnar, helstu forsendur hennar ásamt
markmiðum og áherslum tillöguhöfunda.
·
Lýsing á ytra skipulagi Rafstöðvarreits og tengingu hans
við nánasta umhverfi og útivistarsvæðið í Elliðaárdal ásamt lýsingu á innra
skipulagi sögu- og tæknisýningar.
·
Lýsing á því með hvaða hætti:
– tillagan kynnir eðli og umfang
starfsemi OR og dótturfyrirtækjanna; Veitna, Orku náttúrunnar og Gagnaveitu
Reykjavíkur
– tillagan hefur að leiðarljósi að
efla áhuga á þætti veitureksturs í Elliðaárdal í þróun borgarsamfélagsins á höfuðborgarsvæðinu
– tillagan ýtir undir forvitni og
fræðslu með nýstárlegum og gagnvirkum lausnum sem auka áhuga ungs fólks á að
starfa að orku- eða veitumálum
– tillagan ýtir undir notkun
vistvænna lausna, í samræmi við umhverfisstefnu OR samstæðunnar
– tillagan eflir með fræðslu- og skemmtanagildi
Elliðaárdalinn sem útivistarsvæði.
Tillögum skal skila í
lokuðum umbúðum merktum dulnefni í Hönnunarmiðstöð Íslands, Aðalstræti 2, 101
Reykjavík, fyrir kl. 14 fimmtudaginn 2. maí 2019. Tillögur skulu merktar með
sex tölustafa auðkennisnúmeri sem þátttakendur velja sjálfir. Með tillögunni
skal fylgja sérmerkt umslag með sama auðkennisnúmeri. Umslagið skal innihalda
upplýsingar um þátttakendur. Tillögur sem skilað er með pósti skulu bera
stimpil með dagsetningu skiladags eða fyrr og skal merkja með eftirfarandi
hætti: Hönnunarmiðstöð
Íslands, v. / OR hugmyndasamkeppni, Aðalstræti 2, 101 Reykjavík.
Tillögu er veitt viðtaka
berist hún innan tilgreinds skilafrests og nafnleyndar sé gætt.
Ef módel eða skúlptúr fylgir skal það vera innpakkað og merkt
tillögunni.
Ekki er hægt að tryggja að keppendur fái tillögur sínar
afhentar að keppni lokinni.
Orkuveita Reykjvíkur áskilur sér rétt til þess að efna til
sýningar á innsendum tillögum.
Úrslit
Áætlað er að dómnefnd
ljúki störfum fyrir 21. maí 2019. Þegar dómnefnd hefur formlega lokið störfum
verður nafnleynd rofin og þátttakendum tilkynnt um niðurstöður dómnefndar.
Dómnefndarstörfum lýkur með dómnefndaráliti og útnefningu vinningstillögu.
Veitt verða verðlaun, kr. 2.000.000 fyrir vinningstillögu. Ef dómnefnd telur
enga innsenda tillögu koma til greina til nánari útfærslu áskilur hún sér rétt
til að hafna öllum tillögum og vinningstillaga verður ekki útnefnd. Niðurstaða
dómnefndar er endanleg.
Stefnt
er að því að semja við vinningshafa um frekari hönnun, útfærslu og uppsetningu
tillögunnar. Náist ekki samningar milli Orkuveitu Reykjavíkur og höfundar
vinningstillögunnar innan sex (6) mánaða frá tilkynningu um niðurstöðu
samkeppninnar er Orkuveitu Reykjavíkur heimilt, en ekki skylt, að ganga til
samninga við höfunda annarra keppnistillagna um útfærslu og uppsetningu
tillagna þeirra.
Um tólf mánaða skeið eftir
lyktir samkeppninnar á Orkuveita Reykjavíkur einkarétt á notkunarrétti á innsendum
tillögum. Að þeim tíma loknum er höfundum innsendra tillagna, sem ekki hefur
verið samið við sérstaklega, frjálst að ráðstafa tillögu sinni. Tillöguhöfundar
eiga allan höfundarrétt að tillögum sínum, sbr. höfundarlög nr. 73/1972.
Nánari upplýsingar um
samkeppnina er að finna hér og á www.honnunarmidstod.is
og www.or.is.
Á morgun, laugardaginn 26. janúar, verður opið hús í rafstöðinni á milli klukkan 13 og 16. Örleiðsögn um stöðina og rafmagn í Reykjavík verður á heila og hálfa tímanum. Í húsnæði Hins hússins, hinum megin við Rafstöðvarveginn, verður Vísindasmiðja Háskólalestarinnar með rafmagnstengdar tilraunir, tæki, þrautir og óvæntar uppgötvanir sem allir aldurshópar geta haft gaman af. Nánar um þann viðburð má finna hér.