Hönnunarmiðstöð Íslands hefur ráðið Ástþór Helgason í stöðu stjórnanda HönnunarMars.
Ástþór hefur víðtæka reynslu á sviði hönnunar við sýningastjórnun, viðburðastjórnun og rekstri. Hann hefur sinnt ráðgjöf og stjórnað verkefnum í farsælu samstarfi við fjölda hönnuða, listamanna og stofnanir.
Ástþór Helgason, nýr stjórnandi HönnunarMars.
Ástþór sat í stjórn
Hönnunarsjóðs fyrstu árin frá stofnun hans og
átti virkan þátt í mótun áherslna og starfsemi. Hann hefur einnig setið
í sjórn launasjóðs hönnuða. Ástþór sem er menntaður gullsmiður, sat
áður í stjórn
Form Ísland þverfalegum samtökum hönnuða á Íslandi
sem var undanfari Hönnunarmiðstöðvar.
Ástþór hefur áratuga reynslu sem framkvæmdastjóri í hönnunargeiranum og mun ráðning hans marka upphaf að nýjum kafla í mikilvægu uppbyggingarstarfi Hönnunarmiðstöðvar til eflingar hönnunar og arkitektúrs á Íslandi.
HönnunarMars er hátíð hönnunar og arkitektúrs, þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða samtal þátttakenda og áhorfenda. Á HönnunarMars birtist er suðupunktur nýrrar þróunar, nýsköpunar, hönnunar og viðskipta.
Ástþór tekur við starfinu 1. september.