Fimmtudaginn 14. júní, fór fram fyrsta stóra úthlutun Hönnunarsjóðs á árinu. 86 umsóknir bárust sjóðnum um hátt í 150 milljónir króna en 16 verkefni voru styrkt um samanlagt 22 milljónir króna. Einnig voru veittir 15 ferðastyrkir um samanlagt 1.5 milljónir króna.
Athöfnin fór fram á aðalfundi
Hönnunarmiðstöðvar Íslands í
Norræna húsinu, en hæstu styrkina sem voru 2 milljónir hlutu eftirfarandi aðilar:
• Agustav | 2.000.000 kr.
• Hlín Reykdal | 2.000.000 kr.
• Marcos Zotes | 2.000.000 kr.
Styrki á bilinu 500.000 – 1.5 milljónir króna hlutu eftirfarandi aðilar:
• Ágústa Arnardóttir | 500.000 kr.
• Turfiction í Feneyjum | 500. 000 kr.
• Jóhann Lúðvík Torfason | 500.000 kr.
• Lady Brewery | 500.000 kr.
• Anna María Bogadóttir | 1.000.000 kr.
• Arnar Már Jónsson | 1.000.000 kr.
• Björn Steinar Blumenstein | 1.000.000 kr.
• Gunnar Sverrisson | 1.000.000 kr.
• Grallaragerðin | 1.000.000 kr.
• Portland | 1.000.000 kr.
• Bryndís Bolladóttir | 1.500.000 kr.
• Linda Björg Árnadóttir | 1.500.000 kr.
• And Anti Matter | 1.500.000 kr.
Styrkhafar í vorúthlutun Hönnunarsjóðs 2018.
Þeir aðilar sem hlutu ferðastyrki eru eftirfarandi:
• Andri Hrafn Unnarsson
• Anna María Bogadóttir
• Arkitektafélag Íslands
• Ástríður Birna Árnadóttir
• Bjarni Viðar Sigurðsson
• Erla Sólveig Óskarsdóttir
• FÓLK Reykjavík (3)
• Freyja Bergsveinsdóttir
• Hanna Jónsdóttir
• Massimo Santanicchia
• Thomas Pausz
• Þorbjörg Helga Ólafsdóttir (2)
Upplýsingar um næstu úthlutanir hönnunarsjóðs má finna á
sjodur.honnunarmidstod.is