Málþing um nýjungar og stefnur í innanhúshönnun séðar frá sjónarhorni hönnuða og hönnunarkennslu.
Norræna húsið, miðvikudaginn 13. júní kl. 17-19.
Málþingið fer fram á Ensku. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Á málþinginu verður lögð áhersla á sjálfbærar lausnir og framtíðarsýn í hönnun sem auknar lífstílsbreytingar kalla á óðfluga.
Heiðursgestur málþingsins er finnski iðnhönnuðurinn
Ville Kokkonen (1975) sem á að baki glæstan feril við hönnun og hefur starfað með leiðandi norrænum vörumerkjum á við
Artek, Nokia, Iittala og
Ups. Ville starfar sem prófessor í hönnun við
Aalto University, School of Arts Design and Architecture í Helsinki.
Málþingið er skipulagt af
Norræna húsinu í samstarfi við
Listaháskóli Íslands og
Hönnunarmiðstöð Íslands.
Þátttaka Listaháskóla Íslands er skipulögð af
Garðari Eyjólfssyni og
Thomas Pausz sem eins og
Ville Kokkonen eru hönnuðir og stunda framsæknar kennsluaðferðir. Garðar og Thomas eru fagstjórar meistaranáms í hönnun í Hönnunar- og arkitektúrsdeild Listaháskóla Íslands.
Málþingið er skipulagt í tengslum við hönnunarsýninguna
Innblásið af Aalto: Með sjálfbærni að leiðarljósi sem er sem er hluti af 50 ára afmælisdagskrá Norræna hússins.
Viðburðurinn er styrktur af Pennanum Eymundsson.
www.norraenahusid.is