HönnunarMars fer fram í tíunda sinn dagana 15. – 18. mars 2018. Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum. Á meðal viðburða ár hvert eru sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar.
Dagskrá hátíðarinnar er nú aðgengileg á
www.honnunarmars.is, en þar kennir ýmissa spennandi grasa og er vorboðinn ljúfi sérlega heillandi í ár, enda afmæli í vændum.
Á heimasíðunni má lesa um allar sýningar og viðburði, skipuleggja sig og hlakka til!
Smelltu hér til að skoða dagskrá HönnunarMars 2018