Fréttir

24.1.2018

Leiðsögn um Marshall húsið



Í tilefni af því að Marshall húsið hlaut Hönnunarverðlaun Íslands árið 2017 verður boðið upp á leiðsögn um húsið fimmtudaginn 25. Janúar kl 17.00.
 
Marshall-húsið hlaut Hönnunarverðlaun Íslands árið 2017. Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason arkitektar hjá Kurt og Pí leiddu hönnun verksins í samstarfi við ASK arkitekta.

Marshall-húsið er nýr vettvangur lista við gömlu höfnina í Reykjavík. Arkitektar hússins sem var upprunalega byggt árið 1948 voru Sigurður Guðmundsson og Eiríkur Einarsson. Húsið var byggt sem síldarbræðsla en hýsir nú í kjölfar breytinganna Nýlistasafnið, Kling og Bang, Stúdíó Ólafs Elíassonar ásamt vinnustofu og veitingahúsið Marshall Restaurant + Bar.  Húsið hafði staðið autt í rúmlega tíu ár.
 
Leiðsögnin er í boði Hönnunarsafns Íslands.
 
Ásmundur Hrafn Sturluson, arkitekt hjá Kurt og Pí sér um leiðsögnina.
 
Mæting kl. 17.00 í Marshall-húsið, Grandagarði 20
















Yfirlit



eldri fréttir