Fréttir

4.2.2018

Sænsk – íslenski samstarfssjóðurinn auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki


Mynd: WE LIVE HERE, samstarfsverkefni á milli Íslands, Svíþjóð og Finnlands.

Árið 2018 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum verkefnum.

Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.

  • Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni www.norden.se.
  • Umsóknarfrestur er til 1. mars 2018 og skal skila umsóknum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu sjóðsins.
  • Styrkjum verður úthlutað í apríl.

















Yfirlit



eldri fréttir