Fréttir

5.1.2018

Frábært tækifæri fyrir fyrirtæki í skapandi greinum



Íslensk sprotafyrirtæki í skapandi greinum eiga kost á að taka þátt í alþjóðlegum hraðli Nordic Innovation House í New York. Síðasti dagur til að sækja um er 20. janúar 2018.

  • Námskeið fyrir sprota í skapandi greinum sem haldið er að hluta í Noregi og New York - og stendur yfir á alls 8 mánaða tímabil.
  • Þriggja mánaða aðstaða í fyrirtækjasetri Nordic Innovation House í New York á tímabilinu.
  • Aðstoð ráðgjafa, sérfræðinga og mentora.
Á Norðurlöndum er hefð fyrir því að skilgreina skapandi greinar sem eftirtaldar:

Arkitektúr, tölvuleikir, hönnun, kvikmyndagerð, bókmenntir, tónlist, auglýsingagerð, prentmiðlar, sjónvarp og útvarp, myndlist og sviðslistir.

Áhersla er lögð á að efla þátttakendur í hraðlinum í sölu, markaðsmálum, uppbyggingu mörkunar og ekki síst að koma sér á framfæri í harðri samkeppni í New York með aðstoð ráðgjafa, sérfræðinga og mentora.

Hraðallinn hentar frumkvöðlafyrirtækjum í skapandi greinum sem eru með;
  • … tilbúna vöru eða þjónustu fyrir markað í Bandaríkjunum eða sýnishorn til reiðu sem á erindi þangað
  • … metnað fyrir að vaxa alþjóðlega
  • … öflugt frumkvöðlateymi
  • ...löngun til að læra og auka getu sína til að þroska viðskiptahugmyndina

Þátttökugjald í hraðlinum er 2.500 USD – íslensk yfirvöld munu styrkja fyrirtæki héðan um 1.500 USD. Þáttakendur bera sjálfir kostnað af ferðalögum og upphaldi.

Mikilvægar dagsetningar

Umsóknarfrestur er til           20. janúar 2018 – smelltu hér til að sækja um!
Upphafsfundur í Osló             22. – 23. mars 2018
Námskeið                             21. maí – 1. júní 2018

Nánari upplýsingar veita Andri Marteinsson hjá Íslandsstofu (andri@islandsstofa.is) og Berglind Hallgrímsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands (berglind@nmi.is)



















Yfirlit



eldri fréttir