Geysir Heima, við Skólavörðustíg 7.
Nýverið opnaði ný verslun Geysis á Skólavörðustíg 7, Geysir Heima, sem leggur áherslu á hönnunar- og gjafavöru. Verslunin, sem hönnuð er af Hálfdáni Pedersen, býður upp á mikið úrval af íslenskri hönnun úr ýmsum áttum.
Geysir Heima er ekki þó einungis verslun en í kjallara verslunaninnar er einnig starfrækt lítið hönnunar- og listagallerí, sem ber hið einfalda nafn;
Kjallarinn.
Urban Nomad hillurnar eftir Jón Helga Hólmgeirsson fyrir FÓLK.
Í versluninni eru ýmsir íslenskir hönnunar og listmunir á boðstólnum frá merkjum á borð við
Fólk Reykjavík, Litle Sun, Usee, Studio Brynjar & Veronika, Studio Berlinord, Skata og
Geysir. Þá eru í boði veggspjöld eftir ýmsa hönnuði og listamenn, til að mynda frá hönnunarfyrirtækjunum
WDLND og
Atelier Dóttir.
Líffærafræði leturs eftir
Siggu Rún fást þá í versluninni og einnig Rifdagatalið eftir
Snæfríði og Hildigunni. Einnig voru plagöt sérprentuð fyrir búðina eftir
Rán Flygenring, Auði Ómarsdóttur og
Korkimon.
Stóllinn Skata eftir Halldór Hjálmarsson.
Boðið er líka upp á súkkulaði frá
Omnom og bækur frá íslensku útgáfufyrirtækjunum
Crymogeu og
Angústúru. Tímarit eins og
Neptún og
HA tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr eru einnig til taks.