Mynd: Stúdíó Fræ fyrir viðtal Genki Instruments í tímaritinu HA.
SmallTalks, fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar, hefur sinn gang á ný fimmtudaginn 23. nóvember kl. 20:00, í IÐNÓ.
Fyrsti fyrirlestur vetrarins fjallar um hönnunar- og nýsköpunarverkefnin
Genki & Gola þar sem
Jón Helgi Hólmgeirsson, yfirhönnuður
Genki Instruments, og
Shui Yi, samskiptahönnuður tala um sín verk.
Ljósmynd: HA
Jón Helgi Hólmgeirsson & Genki Instruments
Jón Helgi hefur komið víða við frá því hann útskrifaðist sem vöruhönnuður frá Listaháskóla Íslands 2012. Hann hefur hannað fyrir
Bility, IKEA, Fólk og m.a. hlotið
Red Dot verðlaun fyrir hönnun á umbúðum fyrir
Norðursalt.
Jón Helgi fjallar um feril sinn sem ungur vöruhönnuður og kynnir okkur fyrir nýjasta verkefni sínu sem kallast
Wave sem er þróað af tækni- og sprotafyrirtækinu
Genki Instruments.
Wave er hringur hannaður fyrir tónlistarfólk. Wave nemur hreyfingar handarinnar, snúning og slátt og þannig að tónlistarfólk getur stjórnað hljóði og rafrænum hljóðfærum með einföldum og sjónærnum hætti. Hljómsveitin
Ayia var sú fyrsta til að nota Wave á tónleikum á
Airwaves-hátíðinni en strákarnir hjá Genki sem eru 4 talsins hafa verið í samstarfi við tónlistarfólk við útfærsluna.
Ljósmynd: Magnús Elvar Jónsson
Shu Yi & Gola
Shu Yi er samskiptahönnuður (communication designer) og listamaður frá Peking í Kína. Hún menntaði sig og starfaði í Kína, Bretlandi en lauk meistaranámi í hönnun við
Listaháskóla Íslands árið 2016.
Shu segir frá nýjasta verkefni sínu
Gola sem sýnir í rauntíma upplýsingar um veðurspá um allan heim. Markmið Shu er að nýta lögmál sjónrænnar miðlunar til að samþætta upplýsingar og umhverfi og þannig draga úr streitu og kvíða. Gola hlaut
Red Dot verðlaunin í ár en þau eru virtustu hönnunarverðlaun heims.
Bæði verkefnin hlutu styrk úr Hönnunarsjóði Íslands.
SmallTalks er fyrirlestraröð
Hönnunarmiðstöðvar Íslands sem haldin verður í
IÐNÓ í vetur. Markmiðið er að halda uppi líflegri umræðu um það sem helst er að gerast á sviði hönnunar og arkitektúrs, hönnuðir og arkitektar fjalla um verkefni sín og málefni líðandi stundar eru tekin fyrir.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!