PopUp Verzlun leitar nú að þátttakendum fyrir jólamarkaðinn sem verður haldinn í porti Listasafni Reykjavikur, Hafnarhúsi laugardaginn 9 des. 2017. Opnunartími verður frá klukkan 11 - 17.
Breyting varð á sniði
PopUp Verzlunar 2015 og opnað var fyrir þátttakendur á sviði myndlistar og tónlistar. Vel tókst til og mun PopUp halda því sniði. Tónlistarfólk er hvatt til að sækja um pláss til að selja tónlistina sína, varning og jafnvel spila á deginum. Myndlistarfólk sem hefur til sölu list af einhverju tagi er einnig hvatt til að sækja um.
Sækja verður um þátttöku á
popup.verzlun@gmail.com.
Með umsókn þarf að fylgja mynd eða hlekkur á vörur / list / tónlist ásamt nafni merkis og fullu nafni hönnuðar / listamanns / tónlistarmanns, mikilvægt er að símanúmer og netfang fylgi umsókn. Þátttakendur eru valdir af kostgæfni í takt við stefnu PopUp Verzlunar.
Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Hvað er PopUp Verzlun?
PopUp er farandverzlun stofnuð sem vettvangur fyrir hönnuði til að selja og kynna sínar vörur. PopUp Verzlunin býr sér til nýtt heimili á nýjum stað í markaðsformi í hvert sinn sem hún opnar dyr sínar með nýrri samsetningu vörumerkja. Verzlunin er því aldrei með sama sniði og mótar sig að hverjum stað, hverju sinni.
PopUp verzlun vandar val hönnuða og vörumerkja við þátttöku og leggur ríka áherslu á að vörur séu vandaðar og sýni frumleika, að þær bjóði uppá nýjungar á markaði eða standast stefnu og strauma samtímans. Ekki eru sett nein skilyrði um menntun í faginu við þátttöku, en PopUp teymið áskilur sér rétt til að greina á milli tískuhönnunar, hönnunar & handverks.