Hönnunarmiðstöð Íslands við Aðalstræti 2, 101 Reykjavík.
Gunnar Gunnsteinsson hefur verið ráðinn sem skrifstofustjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Gunnar hefur fjölþætta menntun sem mun nýtast í þessu nýja starfi hjá
Hönnunarmiðstöð. Hann er með MA í
Menningar- og menntastjórnun frá
Viðskiptaháskólanum á Bifröst auk
Markaðs- og útflutningsfræða við
Endurmenntun Háskóla Íslands. Hann er útskrifaður sem leikari frá
Leiklistarskóla Íslands en sá grunnur nýtist sannarlega þegar frumkvæði og skapandi hugsun er nauðsynleg í að leita nýrra leiða við úrlausn verkefna.
Reynsla Gunnars af rekstri og stjórnun innan skapandi greina er margþætt og umtalsverð en lengst af starfaði hann sem framkvæmdastjóri
Bandalag Sjálfstæðu leikhúsanna og
Tjarnarbíós.
Hann hefur staðið fyrir stefnumótunarvinnu, eflt alþjóðlegt tengslanet ásamt því að skapa tækifæri í gegnum alþjóðlega sjóði sem skila auknum fjármunum til starfseminnar en Gunnar hefur m.a. setið í úthlutunarnefnd
Nordic Culture Point.
Gunnar Gunnsteinsson, nýr skrifstofustjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Starf Gunnars verður fyrst og fremst í að sjá um rekstur skrifstofu,
fjármál, bókhald, reikningaútskrift, umsjón með áskrifta- og
félagalistum auk skjalavinnslu ásamt því að taka þátt í ýmsum
sérverkefnum sem tengjast fjölbreyttum verkefnum Hönnunarmiðstöðvar.
Hönnunarmiðstöð heldur
HönnunarMars, gefur út
HA tímarit
um hönnun og
arkitektúr, veitir
Hönnunarverðlaun Íslands,
stýrir
Hönnunarsjóði, sinnir kynningarmálum, ráðgjöf og veitir
upplýsingar stendur fyrr fyrirlestrum og málþingum og svo má lengi
telja.
Við bjóðum Gunnar hjartanlega velkominn til starfa!