Fréttir

28.9.2017

Uppskeruhátíð Nordic Angan í Hönnunarsafni Íslands


Sonja Bent og Elín Hrund Þorgeirsdóttir mynda teymið á bak við Nordic Angan.

Laugardaginn 30. september frá kl. 12-17 fagnar Nordic Angan ilmandi uppskeru sumarsins í Hönnunarsafni Íslands.

Í sumar hafa Þær stöllur hjá Nordic Angan, Sonja Bent og Elín Hrund Þorgeirsdóttir, verið með sýningar- og vinnuaðstöðu í anddyri Hönnunarsafnsins þar sem þær hafa unnið að rannsóknarverkefni sem felur í sér að kortleggja ilmi í íslenskri náttúru með því að eima jurtir. Samhliða kortlagningunni hafa þær nýtt afurðirnar í hönnun og framleiðslu á handgerðum reykelsum, kertum, ilmmyndum, plakötum og veggfóðri.

Þessar afurðir verða til sölu á uppskeruhátíðinni og Sonja og Elín munu fræða gesti um verkefnið og bjóða upp á blómlegt smakk.

Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi 1 er opið daglega frá 12 – 17, lokað á mánudögum.



















Yfirlit



eldri fréttir