Fréttir

13.7.2017

Creative Business Cup fyrir skapandi frumkvöðla



Nýsköpunarmiðstöð Íslands leitar að öflugu frumkvöðlafyrirtæki til að taka þátt í alþjóðlegu frumkvöðlakeppninni Creative Business Cup.

Umsóknarfrestur hérlendis er til 7. ágúst og valin fyrirtæki taka þátt í undanúrslitum Creative Business Cup á Íslandi í september.

Frumkvöðlar fá aðstoð sérfræðinga við að undirbúa fjárfestakynningar og skerpa á viðskiptahugmyndinni.

Sigurvegari hérlendis tekur þátt í aðalkeppni Creative Business Cup í Kaupmannahöfn í nóvember 2017. Keppnisréttinum fylgir flug og gisting fyrir tvo fulltrúa fyrirtækisins.

Í kynningu segir:

„Creative Business Cup er svo miklu meira en bara keppni – þetta er vettvangur sem styður frumkvöðla í skapandi atvinnugreinum, hjálpar þeim að vaxa, tengjast alþjóðlegum fjárfestum, sérfræðingum og mörkuðum.“

Óskað er eftir umsóknum frá skapandi frumkvöðlum. Viðskiptahugmyndin verður að hafa sterka tengingu við skapandi greinar, hafa hátt nýsköpunargildi og mikla markaðsmöguleika.

Að minnsta kosti einn einstaklingur frá hverju liði verður að hafa menntun eða bakgrunn frá skapandi atvinnugreinum.

Nánar hér.



Eyrún Eggertsdóttir tók þátt í alþjóðlegu frumkvöðlakeppninni Creative Business Cup með dúkkuna Lúllu í fyrra.


















Yfirlit



eldri fréttir