Hin árlegu FÍT-verðlaun, sem veitt eru af Félagi íslenskra teiknara, fara fram á HönnunarMars í Tjarnabíó, miðvikudaginn 22.mars kl. 18.30.
Verðlaunin eru veitt fyrir þau verk sem sköruðu fram úr á sviði grafískrar hönnunar og myndskreytingar á liðnu ári en í keppnina senda bæði auglýsingastofur og einyrkjar verk auk þess sem nemendur í grafískri hönnun sendu inn í sérstakan nemendaflokk.
Í kjölfarið verður opnuð vegleg sýning á verðlaunaverkunum
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þann 23. mars kl. 20.00.
Smelltu hér til að sjá þau verk sem eru tilnefnd.
Viðburður á Facebook