Mynd:
Lorena Sendic Silvera
Reykjavík Fashion Festival verður endurvakin í ár, og er því haldin í sjöunda sinn dagana 23.-26. mars 2017. Hátíðin er haldin samhliða HönnunarMars en viðburðir fara fram í SIlfurbergi, Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í Hörpu.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á heimasíðu RFF en umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 7. janúar. Hægt er að finna umsókn á heimasíðu hátíðarinnar
www.rff.is.
Um RFF
Fyrsta
Reykjavik Fashion Festival hátíðin var haldin í marsmánuði árið 2010 og hefur hún verið haldin reglulega síðan. Hátt í 180 manns taka þátt í undirbúningi RFF ár hvert og stendur undirbúningurinn yfir í sex mánuði. RFF hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt og verið frábær vettvangur fyrir hæfileikaríka íslenska fatahönnuði og má segja að hún hafi fest sig í sessi sem ein af aðalhátíðum Reykjavíkur.
Nánar á heimasíðu
RFF.