Hönnunarmiðstöð blæs til jólagleði fimmtudaginn 1. desember kl. 17-20 þar sem opnaður verður fyrsti „glugginn“ í stórglæsilegu tveggja metra háu jóladagatali miðstöðvarinnar (líklega því stærsta á Íslandi).
Á hverjum degi fram að jólum verður „gluggi“ opnaður með glæ-nýrri vöru frá Íslenskum hönnuði, en þann dag verður varan fáanleg á sérstöku jólatilboði. Fylgist með tilboðunum á
instagram og
facebook síðu Hönnunarmiðstöðvar.
Vörurnar verða til sölu í
PopUp búð í húsnæði Hönnunarmiðstöðvar í Aðalstræti 2 en hún verður einskonar forsmekkur að því sem koma skal, því á nýju ári mun verslun með íslenska hönnun opna á neðri hæð hússins.
Verslunin verður opin alla virka daga og um helgar frá kl.12-17.
Verkefnið er unnið í samstarfi við
PopUpVerzlun & And AntiMatter sem hannaði dagatalið.