Fréttir

3.10.2016

Frestur til að sækja um styrk í hönnunarsjóð að renna út



Opið er fyrir umsóknir um styrki til hönnunarsjóðs. Þetta er fjórða og síðasta úthlutunin á árinu en hægt er að sækja um þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki, markaðs- og kynningarstyrki og ferðastyrki.


Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 10.október, úthlutun verður í byrjun nóvember.


Hægt er að sækja um eftirfarandi styrki:

Þróunar- og rannsóknarstyrkir
Er ætlað að styrkja rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna. Þróunar- og rannsóknarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur þróunar- og rannsóknarstyrk á möguleika á að fá verkefnastyrk síðar.

Verkefnastyrkir
Er ætlað að styrkja nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig. Verkefnastyrkir geta að hámarki numið 5 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur verkefnastyrk á möguleika á að fá markaðs- og kynningarstyrk síðar.

Markaðs- og kynningarstyrkir
Er ætlað að styrkja verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar. Markaðs- og kynningarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna.

Ferðastyrkir
Er ætlað að auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Veittir verða allt að 30 ferðastyrkir að upphæð 100 þúsund hver.

Umsóknum skal skilað rafrænt í sérstöku umsóknarformi sem hægt er að nálgast á vefsíðu sjóðsins, sjodur.honnunarmidstod.is
















Yfirlit



eldri fréttir