Fréttir

2.9.2016

Úrslit úr samkeppni um aðkomutákn fyrir Garðabæ kynnt í Hönnunarsafni Íslands



Laugardaginn 3. september fagnar Garðabær 40 ára afmæli sínu, í tilefni af því verða úrslit úr samkeppni um aðkomutákn í Garðabæ kynnt um leið og sýning á öllum tillögum sem bárust í keppnina opnar í Hönnunarsafni Íslands.

Í samkeppni var leitað eftir hugmyndum um nýtt aðkomutákn sem sett verður upp við aðkomuleiðir inn í Garðabæ. Aðkomutákninu er ætlað að vekja athygli á Garðabæ og marka það svæði sem honum tilheyrir. Leitað var að tákni fyrir bæinn sem er ætlað að marka aðkomustaði við bæjarmörk en einnig að þema þess verði nýtt á margvíslegan hátt eins og við gerð listmuna, bréfsefnis, vefsíðu o.s.f.v.

Um síðustu áramót voru liðin 40 ár frá því að Garðabær fékk kaupstaðarréttindi. Vígsla táknsins verður hluti af þeim hátíðahöldum afmælisársins.

Samkeppnin var opin hönnuðum og listamönnum og sá Hönnunarmiðstöð Íslands um framkvæmd keppninnar. Verðlaunaafhendingin fer fram kl.13.30.

Í tilefni dagsins fer fram viðburðarík dagskrá á Garðatorgi frá kl. 13.30 - 18:00. Þar verður m.a. hægt að skoða áhugaverða muni sem valinkunnir Garðbæingar hafa valið undir yfirskriftinni ,,Bentu á þann sem að þér þykir bestur“. Nánar hér.




















Yfirlit



eldri fréttir