Fréttir

16.8.2016

Átak til atvinnusköpunar auglýsir eftir umsóknum um styrki


Mynd: Ágústa Sveinsdóttir /Alvara

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

Markmið verkefnisins:

  • Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnum sjóða og fjárfesta.
  • Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja.

Sérstök áhersla er lögð á:

  • Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
  • Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
  • Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi
  • Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkaði

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is

Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið hildur@nmi.is

Umsóknarfrestur til kl.12:00 á hádegi þann 8. september.
















Yfirlit



eldri fréttir