Fréttir

16.4.2016

Myndlistarskólinn auglýsir eftir deildarstjóra textíldeildar



Myndlistarskólinn í Reykjavík auglýsir 50% starf deildarstjóra textíldeildar laust til umsóknar.

Deildarstjóri stjórnar faglegu starfi innan deildarinnar; skipuleggur skólaárið, ræður kennara og hefur umsjón með nemendahópnum. Stærsta verkefnið er diplómanámið, tveggja ára áfanganám á BA stigi í textílhönnun sem byggir á hugmynda- og hönnunarvinnu og þjálfar nemendur í verktækni með þátttöku í atvinnulífi sem markmið.

Auk þess skipuleggur deildarstjóri stök námskeið fyrir almenning.

Í kynningu segir: „Við leitum að metnaðarfullum myndlistarmanni eða hönnuði með háskólamenntun í textíl, öflugt tengslanet, víðtæka þekkingu á nýjustu framleiðslutækni, góða skipulagsgáfu og brennandi áhuga á skóla-starfi. Ennfremur er æskilegt að viðkomandi hafi kennsluréttindi á framhaldsskólastigi.“

Umsókn þarf að fylgja ítarlegt yfirlit yfir starfsferil ásamt greinargerð þar sem framtíðarsýn umsækjanda og forsendur umsóknar koma fram. Umsóknir skulu vera skriflegar og þurfa að berast skrifstofu skólans fyrir kl. 17:00 mánudaginn 2. maí 2016.

Nýr deildarstjóri tekur formlega við deildinni í byrjun ágúst en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Frekari upplýsingar veitir Áslaug Thorlacius, skólastjóri Myndlistaskólans í Reykjavík, skolastjori@mir.is.
















Yfirlit



eldri fréttir