Fréttir

23.11.2015

Bergþóra Guðnadóttir hlýtur Indriðaverðlaunin 2015


Mynd: Farmers Market

Fatahönnunarfélag Íslands veitti Indriðaverðlaunin í þriðja sinn á uppskeruhátíð félagsins, laugardaginn 21.nóvember. Handhafi verðlaunanna í ár er Bergþóra Guðnadóttir hjá Farmers Market.

Verðlaunin eru kennd við klæðskerann Indriða Guðmundsson, heitinn, sem þekktur var fyrst og fremst fyrir gæði og fagmennsku og eru veitt annað hvert ár þeim fatahönnuði sem þykir hafa skarað fram úr. Markmið verðlaunanna er að veita framúrskarandi fatahönnuði viðurkenningu fyrir starf sitt og framlag til íslenskrar fatahönnunar og beina ljósi að því besta sem er að gerast í íslenskri fatahönnun hverju sinni.

Í ár valdi dómnefnd þann sem þótti skara fram úr á árunum 2013-2015. Dómnefndina skipuðu þau Erna Hreinsdóttir, ritstjóri Nýs Lífs, Eyjólfur Pálsson, stofnandi EPAL, Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar, Katrín Káradóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands og verðlaunahafi Indriðaverðlaunanna 2013 og Linda Björg Árnadóttir, lektor við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands.

Dómnefndin komst einróma að þeirri niðurstöðu að sú sem að verðlaunin skyldi hljóta árið 2015 væri Bergþóra Guðnadóttir fyrir hönnun sína á fatamerkinu Farmers Market.


Bergþóra Guðnadóttir, handhafi Indriðaverðlaunanna 2015.

Við val á hönnuði er litið til gæða hönnunarinnar allt frá hugmyndafræði til frágangs. Þegar kemur að góðri fatahönnun þarf ákveðið jafnvægi að ríkja milli sköpunargleðinnar og hins verklega. Hönnunarvinnan sem fer í hverja fatalínu er mikil og ferlið margslungið. Fjölmörg atriði koma við sögu í hönnunarferlinu, bæði stór og smá, en öll eru þau mikilvæg til að skapa vel heppnaða heildarmynd.

Epal studdi Indriðaverðlaunin með hönnun og gerð sérstaks verðlaunagrips.

















Yfirlit



eldri fréttir