Agile Ísland, ráðstefna fyrir fólk í hugbúnaðargeiranum, verður haldin 11. nóvember næstkomandi á Nordica frá kl. 8.15-17.30.
Þetta er stærsta ráðstefnan hingað til, en yfirskrift hennar er „nútíma stafræn vöruþróun“.
Í ár verða 13 alþjóðlegir fyrirlestrar, úrval af námskeiðum dagana 9-12. nóvember og opin rými, auk þess sem þriðja brautin,
Hönnun, er kynnt í viðbót við
Fólk og
Tækni.
Agile Ísland er ráðstefna fyrir forritara, hönnuði, vörustjóra, Scrum mastera, verkefnastjóra, prófara og stjórnendur í hugbúnaðargeiranum.
Nánar um fyrirlesara, námskeið og annað á vef
Agile Ísland.
Smelltu hér til að kaupa miða.