Óskað er eftir tilnefningum til Hönnunarverðlauna Íslands 2015. Opnað verður fyrir tilnefningar mánudaginn 19. október, en hægt er að benda á eigin verk og verk annarra til miðnættis sunnudaginn 25. október. Markmið með innsendingum er að tryggja að afburða verk fari ekki fram hjá dómnefnd og því hvetjum við eigendur góðra verka til þess að tilnefna eigin verk.
Vakin er athygli á nýjum flokki þar sem
„Besta fjárfesting ársins 2015 í hönnun“ verður valin.
Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við
Hönnunarsafn Íslands,
Listaháskóla Íslands,
Samtök iðnaðarins og
Samtök atvinnulífsins.
Hönnunarverðlaun Íslands skulu veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða -stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka. Verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn 2014. Handhafi þeirra hlýtur peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 kr.
Til að hljóta
Hönnunarverðlaun Íslands 2015 þurfa hönnuðir að vera félagar í einu af aðildarfélögum Hönnunarmiðstöðvar Íslands eða vera fagmenn á sínu sviði. Ný verk teljast til þeirra verka sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þrem árum fyrir afhendingu verðlaunanna. Tekið er tillit til eðlismunar á hönnunargreinunum í þessu samhengi þar sem verkefni taka mislangan tíma og í sumum tilfellum mörg ár. Vinningshafar geta komið úr öllum greinum hönnunar en þurfa að skara verulega fram úr með verkefni sínu eða vinnu.
Besta fjárfesting í hönnun 2015 er ný viðurkenning sem veitt verður fyrirtæki sem hefur með eftirtektarverðum hætti fjárfest í hönnun og arkitektúr eða innleitt aðferðir hönnunar í grunnstarfsemi sína. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna Besta fjárfesting í hönnun 2015 hafa hönnun og arkitekúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.
Markmið Hönnunarverðlauna Íslands
Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs ásamt því að veita hönnuðum, arkitektum og fyrirtækjum viðurkenningu fyrir vel unnin störf.
Vægi hönnunar í menningu okkar, samfélagi og viðskiptalífi er óðum að aukast. Því eru Hönnunarverðlaun Íslands mikilvægur liður í því að vekja athygli á gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs og auka skilning á gildi góðrar hönnunar. Hönnunarverðlaunin gera íslenska hönnuði og arkitekta og þau fyrirtæki sem leggja áherslu á hönnun sýnilegri og þar með áhrifameiri í samfélaginu.
Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent í fyrsta sinn, fimmtudaginn 20. nóvember 2014. Ríflega 100 tilnefningar bárust dómnefnd sem tilnefndi fjögur verkefni sem þóttu skara framúr á sínum sviðum. Verkefnið
Austurland - Designs from Nowhere, eftir
Pete Collard og
Körnu Sigurðardóttur, þótti bera af að mati dómnefndar og hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2014. Sjá nánar
hér.
Í ár verða Hönnunarverðlaun Íslands afhent þriðjudaginn, þann 24. nóvember.
Dómnefnd
Formaður dómnefndar er
Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og fyrrum deildarstjóri sýningardeildar Listasafns Íslands. Auk Hörpu sitja eftirtaldir aðilar í dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2015.
Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, fulltrúi Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnulífsins
Katrín Káradóttir, fatahönnuður og fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands
Massimo Santanicchia, arkitekt og lektor við Listaháskóla Íslands
Sigríður Sigurjónsdóttir, vöruhönnuður og eigandi Spark Design Space
Örn Smári Gíslason, grafískur hönnuður
Nánar á
heimasíðu hönnunarverðlauna Íslands.