Fréttir

11.10.2015

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum



Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamananstöðum árið 2016. Umsóknarfrestur er til kl.15:00, þann 16.október 2015.

Verkefni verða að uppfylla amk. eitt af eftirfarandi skilyrðum:

  • Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila eða á náttúruverndarsvæðum.
  • Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu opinberra aðila jafnt sem einkaaðila.
  • Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna framkvæmda á ferðamannastöðum eða á náttúruverndarsvæðum.

Sótt er um á rafrænni þjónustugátt Ferðamálastofu. Byrja þarf á að skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum í farsíma. Þegar innskráningu er lokið skal velja flipann "Umsóknir".

Nánari upplýsingar hér.
















Yfirlit



eldri fréttir