Snæfellsstofa. Dæmi um byggingu byggða með vistvæn sjónarmið að leiðarljósi.
Í tilefni af alþjóðlegum degi arkitektúrs, mánudaginn 5. október, stendur Arkitektafélag Íslands fyrir opnum fundi frá kl. 16 - 18 í Hannesarholti, Grundarstíg 10, Reykjavík.
Á dagskrá verða nokkur stutt erindi um vistvæna hugsun í manngerðu umhverfi, stöðu og horfur. Mælendur eru:
Sigrún Birgisdóttir, deildarforseti Hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands.
Anna María Bogadóttir, stjórnarformaður verkefnisins Hæg breytileg átt.
Borghildur Sturludóttir, höfundur ritsins Góðir staðir – Leiðbeiningarrit um Uppbyggingu ferðamannastaða.
Gunnar Örn Sigurðsson, einn af verkefnastjórum rannsóknarverkefnisins Betri borgarbragur.
Í framhaldi af því mun arkitektinn
Halldór Eiríksson, einn af frumkvöðlum Vistmenntaverkefnisins AÍ, stjórna pallborðsumræðum um næstu skref í átt til ábyrgari sjálfbærrar hönnunar.
Svarta Fjaran. Dæmi um byggingu byggða með vistvæn sjónarmið að
leiðarljósi.
Í kynningu frá Arkitektafélagi Íslands segir:
„Vakin er athygli á að þótt vitund almennings og ráðamanna um mikilvægi vistvænnar hugsunar í byggingum og skipulagsmálum hafi vissulega verið að aukast er mikilvægt að gera enn betur. Hlutdeild bygginga í ágangi á náttúruauðlindir er gríðarleg og byggingariðnaðurinn losar bæði beint og óbeint mikið magn óæskilegra lofttegunda og hefur margháttuð önnur óæskileg áhrif til versnandi lífsmöguleika komandi kynslóða. Því er jafnvel haldið fram að rekja megi um helming nýtingar náttúruauðlinda og allt að 40% orkunotkunar og útblásturs gróðurhúsalofttegunda til byggingariðnaðar.“
Framhaldsskóli Mosfellsbæjar. Dæmi um byggingu byggða með vistvæn sjónarmið að
leiðarljósi.
„Alþjóðasamtök arkitekta (International Union of Architects – UIA) hafa ákveðið að tengja áherslur sínar í tilefni dagsins þeim alþjóðlegu samningum um aðgerðir í loftslagsmálum (COP 21) sem boðaðir hafa verið í París undir lok nóvember og í byrjun desember. Markmiðið er að beina sjónum ráðamanna og almennings að mikilvægi vistvænnar ábyrgrar hugsunar við hönnun og framkvæmd hins manngerða umhverfis og vekja jafnframt athygli á öllu sem vel er gert á þessu sviði.“
Nánar á www.ai.is
Nánar um alþjóðlega arkitektúrdaginn
Frítt inn og allir velkomnir!