Fréttir

9.9.2015

Á markað með snjallt nýsköpunarverkefni?



Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átak til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

Markmið verkefnisins er:

• Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
• Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla og sprotafyrirtækjum.

Sérstök áhersla er lögð á:

• Verkefni sem skapa ný störf
• Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggja á hönnun
• Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarfi
• Verkefni sem eru að stíga sín fyrstu skref á alþjóðamarkaði

Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins.

Afar mikilvægt er að umsóknir séu vel gerðar og að öll gögn fylgi með þeim en hægt er að hengja viðhengi við rafræna umsókn. Hafi umsókn ekki borist fyrir auglýstan umsóknarfrest, áskilur stjórn Átaks til atvinnusköpunar sér rétt til að hafna umsókn.

Umsóknarfrestur til kl.12:00 á hádegi þann 28.september. Nánar um átak til atvinnusköpunar hér.

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is

Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið: hildur@nmi.is





















Yfirlit



eldri fréttir