Fréttir

24.9.2015

Opið fyrir umsóknir í hönnunarsjóð



Opið er fyrir umsóknir um styrki til hönnunarsjóðs. Þetta er fjórða og síðasta úthlutunin á árinu en hægt er að sækja um þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki, markaðs- og kynningarstyrki og ferðastyrki. Umsóknarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 8.október og úthlutun verður í byrjun nóvember.

Þróunar- og rannsóknarstyrkir
Er ætlað að styrkja rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna. Þróunar- og rannsóknarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur þróunar- og rannsóknarstyrk á möguleika á að fá verkefnastyrk síðar.

Verkefnastyrkir
Er ætlað að styrkja nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig. Verkefnastyrkir geta að hámarki numið 5 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur verkefnastyrk á möguleika á að fá markaðs- og kynningarstyrk síðar.

Markaðs- og kynningarstyrkir
Er ætlað að styrkja verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar. Markaðs- og kynningarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna.

Ferðastyrkir
Er ætlað að auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Veittir verða allt að 30 ferðastyrkir að upphæð 100 þúsund hver.

Umsóknum skal skilað rafrænt í sérstöku umsóknarformi sem hægt er að nálgast á vefsíðu sjóðsins, sjodur.honnunarmidstod.is


Um hönnunarsjóð

Hönnunarsjóður heyrir undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og er tekjustofn hans árlegt framlag sem Alþingi ákveður á fjárlögum. Í ár er framlag til sjóðsins 45 milljónir króna og fer Hönnunarmiðstöð Íslands ehf. með umsýslu sjóðsins.

Megin hlutverk hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, ásamt atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi. Sjóðurinn styrkir jafnframt kynningar- og markaðsstarf erlendis sem stuðlar að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar.

Stjórn hönnunarsjóðs metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra. Fimm manna stjórn er skipuð til þriggja ára í senn. Núverandi stjórn Hönnunarsjóðs skipa: Halldóra Vífilsdóttir formaður, skipaður án tilnefningar, Íva Rut Viðarsdóttir varaformaður, Ástþór Helgason, Ásdís Spano og Haukur Már Hauksson.


Dagsetningar 2015

Úthlutanir þróunar- og rannsóknarstyrkja, verkefnastyrkja og markaðs- og kynningarstyrkja verða tvisvar sinnum á árinu 2015, en ferðastyrkir verða veittir fjórum sinnum. Hér fyrir neðan má sjá dagsetningar hönnunarsjóðs fyrir 2015:

1. úthlutun
Ferðastyrkir | opnar 17. desember | lokar 3. febrúar | úthlutun 2. mars

2. úthlutun
Stór úthlutun | opnar 15. febrúar | lokar 28. apríl | úthlutun 28. maí

3. úthlutun
Ferðastyrkir | opnar 9.júní | lokar 16. ágúst | úthlutun 8. september

4. úthlutun
Stór úthlutun | opnar 25. ágúst | lokar 8. október | úthlutun 13. nóvember

Styrkþegar verða að gera ráð fyrir að það geti tekið allt að 6 vikur að fá fyrsta hluta fjárins afgreiddan. 


















Yfirlit



eldri fréttir