Tulipop hlaut hin virtu Smallish Design Awards 2015 sem afhent voru í Bretlandi þann 27. ágúst. Þar hlaut Tulipop viðurkenningu í flokknum „Best Newcomer", eða sem eitt besta nýja barnavörumerkið á breska
markaðinum.
Verðlaunin eru ein virtustu verðlaun Bretlands á sviði hönnunarvara fyrir börn, en meðal keppenda voru rjómi breskra og alþjóðlegra hönnunarmerkja og verslana. Þar á meðal
Harrods, Liberty, Stella McCartney, Petit Bateau og
Bonpoint. Yfir 200 vörumerki voru tilnefnd til verðlaunanna, því mikill heiður fyrir Tulipop að fá þessa viðurkenningu.
Samkvæmt Smallish ritstjórninni hefur aldrei verið eins mikill fjöldi sterkra og flottra vörumerkja sem keppt hafa um viðurkenninguna. Í dómnefnd eru virtir ritstjórar, hönnuðir og stílistar m.a.
Leah Wood (dóttir
Ronnie Wood í Rolling Stones). Hönnunarvara fyrir börn er ört stækkandi geiri í Bretlandi og markaðurinn gerir sífellt meiri kröfur um framúrskarandi hönnun og gæði.
Skólatöskurnar frá Tulipop eru vinsælar hjá yngri kynslóðinni.
Um Tulipop
Töfrandi Tulipop ævintýraheimurinn var skapaður af tveimur góðum vinkonum,
Signýju Kolbeinsdóttur, vöruhönnuði og teiknara, og
Helgu Árnadóttur, tölvunarfræðingi og MBA. Markmið Signýjar og Helgu með Tulipop er að búa til skapandi og fallegar vörur fyrir börn sem höfða til fólks á öllum aldri.
Í Tulipop heiminum búa krúttlegar og heillandi persónur, eins og sveppstrákurinn hugljúfi Bubble, sem ann öllu sem hrærist, og systir hans Gloomy, hugrakka og ævintýragjarna sveppastelpan sem hræðist ekkert.
Fyrirtækið Tulipop var stofnað í byrjun árs 2010 og er Tulipop vörulínan í dag seld í fjölda fallegra verslana á Íslandi auk þess að vera til sölu í 14 löndum utan Íslands. Allar vörur er jafnframt hægt að kaupa í vefverslun Tulipop. Vörulína Tulipop hefur hlotið lof víða um heim og fengið alþjóðleg hönnunarverðlaun 2014 og 2015.
Þetta er lampinn Bubble eftir Tulipop
Frekari upplýsingar um Smallish Design Awards verðlaunin er að finna á vef Smallish Magazine,
www.smallishmagazine.com.
www.tulipop.is