Fréttir

7.8.2015

Verkefnastyrkir og ferða- og menntunarstyrkir Myndstefs 2015


Myndstef auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki á vegum samtakanna fyrir verkefni sem unnin eru á árinu 2015. Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa allir myndhöfundar.
 
Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna  og þar eru einnig nánar skilgreind þau atriði sem þurfa að koma fram í umsókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna. Umsóknarfrestur rennur út 17. ágúst 2015. Umsóknir sem berast eftir þann tíma fá ekki afgreiðslu. Tekið skal fram að póststimpill gildir á innsendum umsóknum.

Umsóknir skulu berast til skrifstofu Myndstefs, Hafnarstræti 16, p.o.box 1187, 121 Reykjavík fyrir ofangreindan tíma.
 
Vakin er athygli á að þeir sem sent hafa inn umsóknir um styrki fyrir birtingu þessarar auglýsingar verða að endurnýja þær umsóknir.
 
Allar nánari upplýsingar gefur Ólöf Pálsdóttir á opnunartíma skrifstofunnar, 10:00 – 14:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið myndstef@myndstef.is
 
 Vakin er athygli á því að Myndstef áskilur sér rétt til að birta  á heimasíðu sinni texta og myndir um viðkomandi verkefni í samráði við höfund þess.

















Yfirlit



eldri fréttir