Fréttir

26.8.2015

Verkefnastyrkir Creative Europe



Frestur til að skila inn umsóknum vegna samstarfsverkefna í menningarflokki Creative Europe er 7. október 2015, kl.11:00.


Minnst 3 lönd þurfa að vera í samstarfi um verkefni og geta verkefnin gengið þvert á listgreinar. Mikilvægt er að hefja leit að samstarfsaðilum tímanlega, sjá gagnagrunn cultura.cedesk.beniculturali.it/partnersearch. Á vefnum er hægt að skoða þau verkefni sem leita að samstarfsfélögum og einnig skrá eigin verkefnahugmyndir.

Markmið

• Að styðja samstarf á evrópska vísu, menningu og skapandi greinar
• Styðja útbreiðslu á menningu og listum
• Styðja ferðir listamanna milli landa (ferðir tilheyra verkefnum)
• Auðvelda aðgengi að evrópskum listum og reynt að ná til stærri áheyrenda-/áhorfendahópa

Aðrar áherslur Creative Europe

• Styðja listsköpun og nýbreytni á öllum sviðum menningar
• Ýta undir þróun, þekkingu og getu til að aðlagast rafrænni tækni
• Styðja nýja nálgun í að stækka áhorfenda-/áheyrendahópa.
• Styrkja gerð nýrra viðskipta – og stjórnunarmódela
• Koma á alþjóðlegu samstarfi og starfsþróun í ESB og víðar
• Auka fagleg tækifæri listamanna
• Styðja skipulagningu á alþjóðlegum menningarviðburðum eins og t.d. farandsýningum/viðburðum, hátíðum, sýningum o.fl.
• Styrkja kynningar á evrópskum bókmenntum
• Ýta undir áhuga og almenna þátttöku í menningu og skapandi greinum.

Flokkur 1

Minni verkefni, a.m.k. 3 landa samstarf. Verkefnin eru styrkt allt að 200.000 evrum sem eru 60% af heildarkostnaði.

Flokkur 2

Stærri verkefni a.m.k. 6 landa samstarf. Verkefnin geta verið styrkt allt að 2.000.000 € sem væri 50% af heildarkostnaði verkefnis. Verkefni í flokkum 1 og 2 geta staðið yfir í allt að fjögur ár.

Allar nánari upplýsingar má finna hér.
















Yfirlit



eldri fréttir