Fréttir

10.7.2015

Hönnunarsjóður auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrki



Hönnunarsjóður auglýsir eftir umsóknum um ferðastyrk, þetta er þriðja úthlutunin á árinu en frestur til þess að sækja um rennur út 16. ágúst.

Ferðastyrkirnir eru ætlaðir hönnuðum og arkitektum til að auka möguleika á að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum og viðskiptastefnumótum. Hver ferðastyrkur nemur 100.000 krónum en sé gert ráð fyrir fleiri farþegum getur hvert verkefni hlotið fleiri en einn styrk.

Sem fyrr segir er þetta þriðja umsóknarferlið af fjórum um ferðastyrki á þessu ári. Gera má ráð fyrir að um 10 styrkjum verði úthlutað að þessu sinni.

Í lok ágúst verður opnað fyrir umsóknir fyrir almenna styrki, þá verður hægt að sækja um í fjórum flokkum; verkefna-, þróunar- , markaðs- og ferðastyrki. Nánar auglýst síðar.

Smelltu hér til að sækja um ferðastyrk

Smelltu hér til að sjá hverjir hlutu styrk úr síðustu úthlutun.

Nánar á sjodur.honnunarmidstod.is

















Yfirlit



eldri fréttir