Fréttir

8.6.2015

Sumargöngur Hafnafjarðar alla fimmtudaga í sumar



Í sumar verður boðið upp á menningargöngu með leiðsögn um svæðið umhverfis miðbæ Hafnarfjarðar öll fimmtudagskvöld kl. 20.

Þetta er annað sumarið sem göngurnar eru haldnar og í fyrra fór þátttakan fram úr björtustu vonum. Hver ganga tekur um klukkustund, þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

Sumargöngurnar eru samstarf Hafnarborgar, Byggðarsafns, Bókasafns og skrifstofu menningarmála í Hafnarfirði. Göngurnar njóta stuðnings frá Hafnarfjarðarhöfnum.

Dagskrá:

4. júní | Flensborgarhöfn – mannlíf og atvinnulíf. Magnea Guðmundóttir arkitekt ásamt rekstraraðilum á svæðinu. Gengið frá Hafnarborg.

11. júní | Hlutverk St.  Jósefssystra í samfélaginu - Gunnhildur Sigurðardóttir fyrrverandi hjúkrunarforstjóri á St. Jósefsspítala leiðir gönguna. Gengið frá Hafnarborg.

18. júní | Þær höfðu áhrif – Gengið um slóðir áhrifakvenna í hafnfirskum stjórnmálum. Steinunn Þorsteinsdóttir sagnfræðingur. Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

25. júní | Hafnarfjörður frá sjónarhóli kvenna – ljósmyndasýning við strandstíginn. Rósa Karen Borgþórsdóttir. Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

2. júlí | Skrúðgarðurinn Hellisgerði – Steinar Björgvinsson skógfræðingur. Gengið frá inngangi Hellisgerðis við Reykjavíkurveg.

9. júlí | Neisti listarinnar – Slóðir listakonunnar Hönnu Davíðsson. Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

16. júlí | Rölt um listaslóðir – Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur. Gengið frá Bókasafni.

23. júlí | Víðistaðatún – Þráinn Hauksson landslagsarkitekt. Gengið frá Skátaheimilinu við Hjallabraut.

30.júlí | Hugað að náunganum – Gengið um slóðir sem endurspegla þátttöku kvenna í uppbyggingu umönnunar og heilsugæslu í Hafnarfirði. Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.

6. ágúst | Verslunarsaga kvenna – Lúðvík Geirsson fyrrverandi  bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Gengið frá Hafnarborg.

13. ágúst | Loksins klukknahljómur – Björn Pétursson Bæjarmynjavörður Hafnarfjarðar fjallar um kirkjusögu bæjarins. Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins

20. ágúst | Ásgeir Stefánsson og framlag hans til íslenskrar byggingarlistar – Pétur H. Ármannsson arkitekt. Gengið frá Hafnarborg.

27. ágúst | Vettvangur æskunna – Árni Guðmundsson. Félagsuppeldisfræðingur, "leiðir göngu um slóðir unglingamenningar“ Gengið frá Pakkhúsi Byggðasafnsins.


 


















Yfirlit



eldri fréttir