Kjartan Óskarsson húsgagna og innanhússarkitekt sigraði Launch PAD á alþjóðlegu hönnunarsýningunni WantedDesign í New York nú á dögunum.
25 efnilegir hönnuðir voru að þessu sinni valdir úr hópi tæplega tvö hundruð umsækjenda og stóð Kjartan Óskarsson uppi sem sigurvegari fyrir framúrskarandi hönnun sína á þremur ljósum. Ljósin hans byggja á þeirri hugmynd að skapa persónulega tengingu milli ljóss og notanda þannig að með einfaldri snertingu og hreyfingu er hægt að stjórna lýsingunni til þess að gera upplifunina áhugaverðari fyrir notandann.
Kjartan er innanhúsarkitekt frá Istituto Superior Di Architettura E Design(ISAD) í Mílanó og með meistaragráðu í húsgagnahönnun frá Rhode Island School of Design (RISD).
Launch PAD hluti sýningarinnar er vettvangur fyrir unga hönnuði eða fyrirtæki með vörur sem tilbúnar eru til framleiðslu til þess að mynda tengsl. Þangað koma framleiðendur, smásöluaðilar og dreifingaraðilar í leit að samstarfsaðilum.
Í dómnefndinni sátu fagmenn úr hönnunargeiranum svo sem
Jaime Derringer stofnandi Design Milk,
Marva Griffin Whilshire stofnandi hönnunarsýningarinnar Salone del Mobile í Mílanó,
Giulio Cappellini frá húsgagnaframleiðandanum Cappellini og
Noah Schwarz frá Design Within Reach ásamt fleirum. Í verðlaun var Kjartani boðið að sýna verk sín á WestEdge hönnunarhátíð í Los Angeles í október 2015 og á WantedDesign New York að ári. Verk Kjartans er hægt að nálgast í gegnum síðuna
www.kjartanoskarsson.com.
Sýningin WantedDesign er haldin um miðjan maí þegar New York Design week er í fullum gangi.