Fréttir

27.4.2015

BORGARLANDSLAG | Málþing FÍLA þann 30. apríl



Í tilefni af alþjóðlegum mánuði landslagsarkitektúrs stendur Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA, fyrir málþingi fimmtudaginn 30. apríl.

Málþingið ber yfirskriftina Borgarlandslag; framtíðarsýn og hönnun nærumhverfis í byggð, en þar verður rætt um mikilvægi þess að efla gæði í þéttbýli og með hvaða hætti hægt er að nota hönnun sem verkfæri til þess að ná fram þeim eiginleikum almenningsrýma er veita tækifæri til eflingar lýðheilsu, auka sjálfbæra þróun og náttúruvernd í byggðum og styrkja fjölbreytta og oft staðbundna menningarstarfsemi.




Þrír erlendir landslagsarkitektar sem hlotið hafa alþjóðlegar viðurkenningar og starfa með nýja strauma í hönnun og vinnuaðferðum landslagsarkitekta halda erindi á málþinginu:

Jeppe Aagard Andersen er danskur landslagsarkitekt sem hefur haldið erindi um allan heim um málefni er tengjast hönnun borgarrýma, tímann sem verkfæri og ábyrgð okkar gagnvart komandi kynslóðum.

Lisa Klingwall er sænskur landslagsarkitekt og starfar hjá Stokkhólmsborg. Hún vinnur að verkefnum sem tengjast leiksvæðum barna, þéttingu byggðar og hvernig börn upplifa og nota leiksvæði og nærumhverfi sitt.

Lorenz Dexler rekur teiknistofuna Topotek1 í Berlin ásamt Martin Rein-Cano. Stofan vann samkeppni á Nørrebro í Kaupmannahöfn, verkið er kallað Superkilen og hefur hlotið ýmis verðlaun og var m.a. tilnefnt til Mies van der Rohe verðlaunanna.

Þá munu Aðalheiður Atladóttir arkitekt FAÍ, Páll Jakob Líndal umhverfissálfræðingur og landslagsarkitektarnir Hermann Ólafsson, Auður Sveinsdóttir, Dagný Bjarnadóttir og Þráinn Hauksson halda erindi. Hjálmar Sveinsson, heimspekingur og formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar mun setja málþingið og fundarstjóri er Stefán Thors, arkitekt FAÍ.

Á málþinginu verða einnig nokkur styttri erindi sem fjalla um íslensk verkefni og faglega nálgun á hönnun þéttbýlis á Íslandi.

Samstarfsaðilar málþingsins eru Norræna húsið og Íslensk erfðagreining.

Smelltu hér fyrir DAGSKRÁ
Smelltu hér fyrir SKRÁNINGU

Frekari upplýsingar varðandi fyrirlesara og annað varðandi málþingið munu birtast á heimasíðu FÍLA.

Sem fyrr segir er málþingið haldið fimmtudaginn 30. apríl, í húsi íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8, 101 Reykjavík.
















Yfirlit



eldri fréttir