Hönnunarmars verður settur í sjöunda sinn, fimmtudaginn 12. mars klukkan 18:00 á jarðhæð Hörpu. Við sama tilefni opna þrír íslenskir hönnuðir sýningu í Epal, Hörpu.
Á HönnunarMars er hönnun kynnt sem atvinnugrein sem byggir á traustum grunni og gegnir veigamiklu hlutverki í samtímanum. Ríflega í 100 viðburðir eru á dagskrá hátíðarinnar ár hvert. Þar á meðal sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar.
Á HönnunarMars sameinast allar greinar hönnunar; fatahönnun, arkitektúr, húsgagna- og innanhússhönnun, grafísk hönnun og vöruhönnun. Viðburðir hátíðarinnar eru skipulagðir af íslenskum hönnuðum og arktitektum, en þátttakendur hátíðarinnar telja um 400 ár hvert. Aukinn fjöldi erlendra þátttakenda kemur til landsins með hverju ári og tekur þátt í HönnunarMars.
Á HönnunarMars býðst tækifæri til að auðga andann og sækja innblástur. Hátíðin er orðin mikilvægt hreyfiafl í íslensku samfélagi og er viðskiptalegt vægi hátíðarinnar mjög mikið fyrir þátttakendur.
Smelltu hér til að sjá dagskrá HönnunarMars