Mynd: Börkur Sigþórsson
Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent í fyrsta sinn í dag, fimmtudaginn 20. nóvember, við hátíðlega athöfn í Kristalsal Þjóðleikhússins. Ríflega 100 tilnefningar bárust dómnefnd sem tilnefndi fjögur verkefni sem þóttu sigurstranglegust. Verkefnið sem þótti skara framúr að mati dómnefndar og hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2014 er Designs from Nowhere eða Austurland eftir Pete Collard og Körnu Sigurðardóttur. Hönnunarverðlaun Íslands 2014 eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, veitt af iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Stofnun Hönnunarverðlauna Íslands er mikið fagnaðarefni fyrir íslenskt hönnunarsamfélag, en vægi hönnunar í menningu okkar, samfélagi og viðskiptalífi er óðum að aukast og því mikilvægt vekja athygli á og auka skilning á gildi góðrar hönnunar.
Austurland: Designs from Nowhere, er verkefni sem snýst um að kanna möguleika til framleiðslu og atvinnuuppbyggingar á Austurlandi, þar sem notast er við staðbundin hráefni og þekkingu.
Karna Sigurðardóttir vöruhönnuður og kvikmyndaleikstjóri og
Pete Collard, listrænn stjórnandi hjá Design Museum í London áttu frumkvæði að verkefninu og fengu til liðs við sig hönnuðina
Þórunni Árnadóttur,
Max Lamb,
Juliu Lohmann og
Gero Grundmann til að þróa sjálfstæð verkefni í nánu samstarfi við handverksfólk og fyrirtæki á Austfjörðum.
Í tilkynningu frá dómnefnd segir: „Verkefnið þykir sýna á afar sannfærandi hátt að hlutverk hönnuða í dag felst í æ ríkari mæli í því að efla sýn og auka metnað til sköpunar og framleiðslu. Landsbyggðin hefur víða notið góðs af aðkomu hönnuða og hafa mörg sveitarfélög á Íslandi, fyrirtæki og bændur tekið þátt fjölbreyttum verkefnum á síðustu árum, þar sem leitast er við að finna nýjar leiðir í hráefnisnotkun og atvinnusköpun með mjög góðum árangri. Verkefnið, sem var bundið við Austurland, sýnir að með samstilltri sýn og virðingu fyrir menningu á hverjum stað, þar sem handverk, þekking og staðbundinn efniviður er kannaður til hlítar, felur í sér aukin tækifæri til að skapa framúrskarandi verk og hlýtur að vera hvatning öllum til handa.“
Þau verkefni sem einnig hlutu tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands eru eftirfarandi:
Ljósmyndastúdíó H71a
Ljósmyndastúdíó H71a á Hverfisgötu, hannað af Stúdíó Granda, er vandlega úthugsuð úrlausn, þar sem tekst á sannfærandi hátt að aðlaga viðbyggingu, húsinu sem fyrir er. Þessi leið, minniháttar inngrip í byggingarlist, er nauðsynleg til að viðhalda útþenslu miðbæjar Reykjavíkur. Viðbyggingin sýnir að hægt er að teikna nýbyggingar og reisa þær í samræmi við það umhverfi sem fyrir er.
Magnea AW2014
Magnea AW2014 eftir fatahönnuðinn Magneu Einarsdóttur var sýnd á Reykjavík Fashion Festival fyrr á árinu. Magnea leggur ríka áherslu á prjón og textíl í hönnun sinni og nýtir að miklu leyti íslenskt hráefni í bland við nýstárlegri efni. Nálgun hennar er fersk og einkennist af ítarlegri rannsóknarvinnu og tæknilegri þekkingu. Niðurstaðan eru óvæntar, stílhreinar, grafískar flíkur, ríkar af áferðum, prjóni og áhugaverðum frágangi.
Skvís
Verkið Skvís eftir Sigga Eggertsson sem sýnt var í Spark Design Space 2013 sýndi á einstakan hátt kraft og gildi grafískrar hönnunar og þá upplifun sem hún getur skapað. Í einstaklega litríku verki er að finna átta andlit, en verkið er borið uppi af abstrakt mynsturgerð sem Siggi hefur þróað og er höfundareinkenni verka hans. Grafísk hönnun Sigga var sett í nýtt samhengi með sýningunni, þar sem áhorfandinn gekk inn í optíska og orkumikla mynstursmiðju hönnuðarins, þar sem mörk tvívíðs og þrívíðs rúms mættust.
Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2014
Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands
Massimo Santanicchia, lektor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands
Örn Smári Gíslason, sjálfstætt starfandi grafískur hönnuður
Laufey Jónsdótti,r fatahönnuður og formaður Fatahönnunarfélags Íslands
Tinna Gunnarsdóttir, sjálfstætt starfandi hönnuður og kennari við Listaháskóla Íslands
Verðlaunagripurinn, hannaður af Birni Loka, Elsu og Kristínu Maríu.
Mynd: Börkur Sigþórsson.
Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að Hönnunarverðlaunum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, en tilgangur þeirra er að vekja athygli á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs ásamt því að veita hönnuðum/arkitektum hvatningu og viðurkenningu. Hönnunarverðlaun Íslands 2014 eru peningaverðlaun að upphæð
1.000.000 krónur, veitt af
iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Að auki hlýtur verðlaunahafinn grip hannaðan af grafísku hönnuðunum
Birni Loka Björnssyni,
Elsu Jónsdóttur í samstarfi við vöru- og upplifunarhönnuðinn
Kristínu Maríu Sigþórsdóttir.
Nánar um verðlaunin á:
verdlaun.honnunarmidstod.is