Miðvikudaginn 29 október kl. 12.10 heldur Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir erindið
Þvers & kruss í fyrirlestrarröð hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands,
SNEIÐMYND í Þverholti 11, fyrirlestrarsal A.
Í fyrirlestrinum mun Guðrún Lilja fjalla um hvernig menntun hennar og reynsla hefur leitt
í ljós að ákveðinn hreyfanleika er að finna milli faggreina. Þegar þær vinna saman verða til
áður óþekktar lausnir. Leikvöllurinn er skýr og aðferðafræðin sem notuð er brúar bil á milli
tækni, viðskipta og sköpunar.
Guðrún Lilja er með MPM, meistarpróf í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík
og BA í iðnhönnun frá Design Academy Eindhoven ásamt því að hafa lokið burtfararprófi
í húsgagnasmíði úr Tækniskólaunum í Reykjavík. Frá árinu 2005 hefur Guðrún rekið
hönnunarfyrirtækið Studiobility, stofnað vörumerkið Bility og tekið að sér margvísleg
verkefni fyrir erlenda og innlenda aðila.
Hún hefur þróað og leiðbeint á námskeiðum við
Listaháskóla Íslands, haldið fjöldan allan af fyrlestrum og verið prófdómari bæði hérlendis og
erlendis.
Umfjallanir um verk hennar hafa birst víða um heim í helstu bókum, tímaritum og
vefmiðlum sem fjalla um strauma og stefnur í hönnun.