Fréttir

17.10.2014

Landmótun fagnar 20 ára starfsafmæli



Þann 15. september var Landmótun 20 ára. Landmótun hefur starfað sem ráðgjafastofa frá því að hún var stofnuð 1994 og verið í stöðugri þróun. Stofan hefur ávallt leitast við að vera í fararbroddi við að færa út verksvið landslagsarkitektúrs og skipulagsfræða.

Á Landmótun er unnið á tveimur sviðum, skipulagi og hönnun auk þess sem stofan hefur unnið að mati á umhverfisáhrifum, sinnt eftirliti með framkvæmdum og unnið að kortagerð svo eitthvað sé nefnt. Á síðustu 20 árum hefur stofan tekið þátt í fjölmörgum samkeppnum og margoft unnið til verðlauna.

Verkefni Landmótunar er að finna í öllum landshlutum á Íslandi auk þess sem fyrirtækið hefur unnið að verkefnum á Grænlandi, í Færeyjum og Noregi.

Af tilefni afmælisins gefur Landmótun út bókina, Að móta land í 20 ár.

Smellið hér til að nálgast bókina á vefrænu formi

www.landmotun.is
















Yfirlit



eldri fréttir