Fréttir

29.10.2014

Frumvarp um breytingar á tollalögum fyrir hönnuði



Þingmenn Bjartrar framtíðar hafa lagt fram frumvarp á Alþingi sem miðar að því að einfalda tollalög þannig að hönnuðir þurfi ekki að borga há gjöld vegna sýnishorna eða frumgerða sem þeir fá send að utan. Frumvarpið er unnið út frá leiðbeiningariti um tollun frumgerða og sýnishorna sem kom út á vegum Hönnunarmiðstöðvar í maí 2014.

Hönnunarmiðstöð Íslands gaf leiðbeiningaritið út en verkefnið var unnið með stuðningi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti í samstarfi við hönnunarfyrirtækin Farmers Market, KronKron, Tulipop, Igló, Ella, Freebird, Steinunn, Tollstjóraembættið og hraðflutningsfyrirtækin DHL, IceTransport, Express og TNT.

Verkefnið hófst árið 2011 með fundum Hönnunarmiðstöðvar Íslands, tollstjóraembættis, fjármála- og iðnaðarráðuneytis og umræðan því verið lengi í gangi.

Leiðbeiningarnar eru fyrir tollayfirvöld annars vegar og fyrir hönnuði hins vegar.Verkefnið var unnið í góðu samstarfi ofantaldra aðilla þess að greina mætti þau vandamál sem hönnuðir standa frammi fyrir í dag. Tilgangur verkefnisins er að útlista bestu lausn við tollun miðað við tollalögin í dag og finna leiðir sem væri hægt að vinna að til framtíðar með betri lausn í huga.

Soffía Theódóra Tryggvadóttir stýrði verkefninu fyrir hönd Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Soffía er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og stýrir veftímaritinu Nordic Style Magazine.

Smelltu hér til að nálgast ritið.



















Yfirlit



eldri fréttir