Fréttir

15.10.2014

Íslenskir gullsmiðir fagna 90 ára afmæli félagsins



Laugardaginn 18. október opnar sýningin Prýði í Hönnunarsafni Íslands. Sýningin er haldin í tilefni af 90 ára afmæli Félags íslenskra gullsmiða, en þar verða gripir eftir 40 gullsmiði sem gefnar voru frjálsar hendur að smíða fyrir sýninguna eða velja úr eigin safni.

Gullsmiðirnir eru á ólíkum aldri, þeir sem unnið hafa við fagið í áratugi og byggt upp atvinnurekstur og tekið til sín lærlinga, svo og yngra fólk sem sýnir við hlið meistara sinna og hefur á síðustu árum skapað sér nafn og sérstöðu með þátttöku í fjölda sýninga og rekstri vinnustofa eða verslana. Nýútskrifaðir gullsmiðir eru einnig meðal sýnenda og þátttaka þeirra er mikilvægur hluti þess sem sýningunni er ætlað að gera, að varpa ljósi á þá breidd sem ríkir í íslenskri gullsmíði í dag.

Í kynningu segir: „Smíðisgripir, corpus, eru fátíðari í dag en áður fyrr. Á sýningunni má þó finna glæsilegt dæmi um slíka nýsmíði er tengir saman nútíð og fortíð. Skartgripir skipa stærstan sess á sýningunni. Í þessum verkum gætir mikillar fjölbreytni og helst má flokka skartgripina eftir hefðbundinni nálgun í efnisvali annars vegar og hins vegar þar sem ögrandi andstæður byggja á óhefðbundnari efnum og formum. Nákvæm handverksþekking og listræn smíði skapa nýjar víddir á sviði skartgripahönnunar, í samræmi við ríkjandi strauma og stefnur í alþjóðlegri skartgripahönnun í dag.“

Eftirtaldir gullsmiðir eiga verk á sýningunni:
Anna María Sveinbjörnsdóttir
Arna Arnardóttir
Ása Gunnlaugsdóttir
Ásgeir Reynisson (Gull- og silfursmiðjan Erna)
Ásmundur Kristjánsson
Ástþór Helgason
Berglind Snorradóttir
Dóra Jónsdóttir
Dýrfinna Torfadóttir
Edda Bergsteinsdóttir
Eggert Hannah
Erling Jóhannesson
Friðrik Freyr Flosason
Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir
Guðrún Bjarnadóttir
Halldór Kristinsson
Hansína Jensdóttir
Haukur Valdimarsson
Helena Rós Róbertsdóttir
Helga Ósk Einarsdóttir
Inga R. Bachmann
Jóhannes Arnljóts Ottósson
Jón Snorri Sigurðsson
Júlía Þrastardóttir
Kjartan Örn Kjartansson
Lilja Unnarsdóttir
Lovísa Halldórsdóttir
Olga Perla Nielsen
Orri Finn
Ófeigur Björnsson
Páll Sveinsson
Rúnar frá Keflavík
Sif Ægisdóttir
Sigmar Ó. Maríusson
Sigrún Sigurjónsdóttir
Sigurður G. Steinþórsson
Sólborg Sumarrós Sigurðardóttir
Stefán Bogi Stefánsson
Unnur Eir Björnsdóttir
Þorbergur Halldórsson.

Sýningarnefnd skipa: Edda Bergsteinsdóttir, Halla Bogadóttir, Harpa Þórsdóttir, Sif Ægisdóttir.

www.honnunarsafn.is

Mynd: af vef Hönnunarsafni Íslands. Hringur eftir Rúnar frá Keflavík.
















Yfirlit



eldri fréttir