Fréttir

8.10.2014

Hönnunarmiðstöð kynnir Hönnunarverðlaun Íslands

 
Hönnunarverðlaun Íslands verða afhent í fyrsta sinn í nóvember næstkomandi. Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands. Tilgangur þeirra er að vekja athygli á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs ásamt því að veita hönnuðum/arkitektum hvatningu og viðurkenningu fyrir vel unnin störf.

Vægi hönnunar í menningu okkar, samfélagi og viðskiptalífi er óðum að aukast. Því eru Hönnunarverðlaun Íslands mikilvægur liður í því að vekja athygli á gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs og auka skilning á gildi góðrar hönnunar. Einnig munu Hönnunarverðlaunin nýtast til að gera íslenska hönnuði og arkitekta meira áberandi og sýnilegri sem einstaklinga í samfélaginu.

Hönnunarverðlaun Íslands 2014 eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000kr veitt af Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.

Tilnefningar

Opnað verður fyrir tilnefningar á miðnætti miðvikudaginn 1. október, sem fimm manna dómnefnd skipuð af Hönnunarmiðstöð Íslands, Listaháskóla Íslands og Hönnunarsafni Íslands, fer yfir og metur.

Tilnefningar til verðlaunanna fara fram hér.

Hönnuðir og arkitektar geta sjálfir tilnefnt eigin verk. Einnig má tilnefna verk annarra. Tilnefningum er skilað á rafrænu eyðublaði sem er hér á síðunni. Með hverri tilnefningu má skila inn pdf. skrá að hámarki 4xA4.

Verðlaunin skulu veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða -stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka. Þá þurfa hönnuðir að vera félagar í einu af aðildarfélögum Hönnunarmiðstöðvar Íslands eða fagmenn á sínu sviði til að hljóta verðlaunin. Ný verk eru verk sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þrem árum fyrir afhendingu verðlaunanna, taka þarf tilliti til eðlismunar á hönnunargreinunum í þessu samhengi þar sem t.d. grafískir hönnuðir vinna verk sín yfirleitt á fremur skömmum tíma en arkitektar aftur á móti á mun lengri. Vinningshafar geta komið úr öllum greinum Hönnunarmiðstöðvar en þurfa að skara verulega úr með verkefni sínu eða vinnu.

Lokað verður fyrir tilnefningar á miðnætti föstudaginn 24. október. 

Dómnefnd
Formaður dómnefndar er Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands og fyrrum deildarstjóri sýningardeildar Listasafns Íslands. Auk Hörpu sitja eftirtaldir aðilar í dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands 2014:

Massimo Santanicchia, arkitekt og lektor við Listaháskóla Íslands
Katrín Káradóttir, fatahönnuður og fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands
Sigríður Sigurjónsdóttir, vöruhönnuður og eigandi Spark Design Space
Örn Smári Gíslason, grafískur hönnuður

Nánar um dómnefnd hér.


Mynd: Hörður Lárusson

















Yfirlit



eldri fréttir