Fréttir

8.5.2014

Úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru



Úthlutun úr Hönnunarsjóði aAuroru fór fram í dag fimmtudaginn 8. maí. Alls voru 12,2 miljónum úthlutað til 7 verkefna, en að þessu sinni bárust sjóðnum 47 umsóknir.

HÆG BREYTILEG ÁTT (5.000.000)

HÆG BREYTILEG ÁTT er verkefni á sviði byggða- og íbúðaþróunar þar sem lögð er áhersla á að fá fram hugmyndir sem varpa ljósi á vistvænni, samfélagsmeðvitaðri, hagkvæmari og framsæknari íbúðarkosti í íslensku þéttbýli í krafti hugmyndavettvangs, þar sem samvinna er í fyrirrúmi. Ráðin hafa verið fjögur þverfagleg teymi hönnuða, arkitekta, tæknimenntaðra einstaklinga og hugvísinda- og raunvísindafólks til að takast á við þetta mikilvæga verkefni. Samstarfsaðilar Hönnunarsjóðs Auroru í þessu verkefni eru Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, Félagsbústaðir, Búseti, Félagssofnun stúdenta, Upphaf fasteignafélag, Listaháskóli Íslands og Hönnunarmiðstöð Íslands. www.haegbreytilegatt.is

BÓKVERK UM GUNNLAUG HALLDÓRSSON ARKITEKT (1.200.000)
Styrkur veittur til lokafrágangs og undirbúnings útgáfu yfirlitsritsverks um ævi og verk Gunnlaugs Halldórssonar arkitekts. Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag.
Höfundur, ritstjóri og ábyrgðarmaður er Pétur H. Ármannsson arkitekt. Stefnt er að útgáfu verksins nú í haust en í ár eru 105 ár liðin frá fæðingu Gunnlaugs. www.hib.is

ÍGLÓ&INDÍ (2.000.000)
Hönnunar og markaðsfyrirtækið Ígló&Indí fær styrk til þátttöku í vörusýningu og til að ráða sérfæðing vegna markaðsetningar vörumerkisins í Bretlandi. Vara fyrirtækisins er barnafatnaður sem hefur skapað sér sérstöðu með skemmtilegri notkun teikninga á fatnaðinn og við gerð heildar konsepts vörumerkisins.
Aðstandendur Ígló&Indí eru þær Helga Ólafsdóttir stofnandi fyrirtækisins, fatahönnuður og listrænn stjórnandi og Tinna Ólafsdóttir viðskiptafræðingur og framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Höfundur myndskreytinga er Katrín Pálsdóttir grafískur hönnuður. www.igloandindi.com

AÐALBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR og DÓSAVERKSMIÐJAN (500.000)
Aðalbjörg Þórðardóttir er grafískur hönnuður. Hún fær styrk til hönnunar á námsefni við kennslu íslensku fyrir útlendinga með sérstakri áherslu á gerð borðspils sem auk þess að nýtast við tungumálakennslu er ætlað að skemmta og fræða um menningu þjóða. Samstarfsaðili Aðalbjargar í verkefninu er tungumálaskólinn The Tin Can Factory eða Dósaverksmiðjan sem starfræktur er í Reykjavík. www.thetincanfactory.eu

HUGDETTA (2.000.000)
Fyrirtækið Hugdetta fær styrk til markaðsrannsókna og markaðssetningar vöru sinnar „Skepnusköpun“ sem eru fiskbeinamódel. Aðalhönnuður vörunnar er Róshildur Jónsdóttir vöruhönnuður sem jafnframt er annar eigandi fyrirtækisins Hugdettu en fyrirtækið á Róshildur með manni sínum Snæbirni Stefánssyni vöruhönnuði. Fiskbein sem áður voru urðuð eru nú orðin að áhugaverðri afurð tilbúinni til fjöldaframleiðslu á Íslandi og framundan er ítarleg markaðsrannsókn á möguleikum vörunnar á alþjóða markaði. www.hugdetta.com

UNA BALDVINSDÓTTIR (500.000)
Una Baldvinsdóttir sem hefur nýlokið mastersnámi í textílhönnun fær styrk til stafsnáms hjá þýska hönnunarfyrirtækinu BLESS sem er framsækið hönnunarfyrirtæki og hannar bæði fatnað og margs konar húsbúnað.

HÖNNUNARMIÐSTÖÐ ÍSLANDS (1.000.000)

Hönnunarmiðstöð Íslands fær styrk til uppbyggingar HönnunarMars hátíðarinnar, meðal annars til heimildaöflunar og skrásetningar efnis fyrir gerð kynningarmyndar um hátíðina. www.honnunarmidstod.is

Þetta er 11. úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru en sjóðurinn hóf starfsemi í byrjun árs 2009.
Hönnunarsjóður Auroru er rekinn fyrir árlegt framlag úr Velgerðasjóði Auroru. Stefnt er að því að næsta úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru verði í nóvember 2014. Umsóknarfrestur fyrir næstu úthlutun er til 15. september næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Margrét Ólafsdóttir frkv.stj. Hönnunarsjóðs Auroru, s. 772-1200
gmo@honnunarsjodur.is, honnunarsjodur.is, haegbreytilegatt.is
















Yfirlit



eldri fréttir