Fréttir

28.4.2014

Mannamót í Apríl | Advania býður heim



Á síðasta Mannamóti vetrarins, þann 30. apríl verður Advania heimsótt. Þar verður vel tekið á móti okkur með veitingum í föstu og fljótandi formi. Jafnframt verða áhugaverð og skemmtileg erindi flutt.

Dagskrá

Velkomin til Advania | Elísabet Sveinsdóttir, markaðsstjóri Advania
Upplýsingatækni gerir gæfumuninn | Gestur G. Gestsson forstjóri Advania
Hvaða upplýsingar eiga fyrirtæki um viðskiptavini - en nota ekki? | Ragnar Már Magnússon, sérfræðingur viðskiptagreindar
Ný aðferðarfræði við markaðssetningu. Örlítið um efnismarkaðssetningu (content marketing) | Jón Heiðar Þorsteinsson, sérfræðingur á markaðssviði

Hvar: Advania, Guðrúnartúni 10, 108 Reykjavík
Hvenær: Miðvikudaginn 30. apríl
Tími: kl. 17.15 - 18.30

Um Mannamót

Hugmyndin með Mannamóti er að skapa vettvang þar sem fólk hittist til að spjallar saman í þægilegu og óformlegu umhverfi.

Hvert Mannamót hefst á stuttri kynningu, þar sem sagt er frá reynslusögu fyrirtækis, rannsókn, hugmyndafræði eða öðru áhugaverðu. Þetta er breytilegt hvert sinn en byrjar kl.17.15 svo fólk skal mæta tímalega. Athugið að þessi viðburður er ókeypis og ekki þarf að skrá sig - bara mæta!

Samstarfssamtök; ÍMARK, Almannatengslafélagið, SÍA, SVEF, Hönnunarmiðstöð Íslands, Ský, FVH, RUMBA Alumni, MBA félag HÍ, Stjórnvísi, Klak, Innovit, KVENN, SFH, FKA.
















Yfirlit



eldri fréttir