Fréttir

21.4.2014

Samkeppni | Heildarskipulag Háskólasvæðisins



Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands efna til hugmyndasamkeppni um heildarskipulag fyrir Háskólasvæðið. Þátttakendur geta skilað inn heildarhugmyndum sínum að framtíðarskipulagi eða lagt hugmyndir inn í umræðuna um þetta þýðingarmikla verkefni. Frestur til að skila inn tillögum hefur verið framlengdur til 12. maí og er áætlað að niðurstaða dómnefndar liggi fyrir í byrjun júní.

Aðeins tillögur sem fela í sér heildarlausn alls svæðisins koma til greina til verðlauna en tillögur þar sem einungis hluti svæðisins er tekinn fyrir koma, eftir atvikum, til greina vegna innkaupa og viðurkenninga fyrir athyglisverðar tillögur.

Meginmarkmið samkeppninnar eru:

• Að fá fram heildstæðar tillögur um samkeppnissvæðið.
• Að fá fram tillögur sem undirstriki sérstöðu svæðisins og efli það sem menningarkjarna í borginni.
• Að skapa virkt og aðlaðandi svæði með góðum tengingum, bæði innbyrðis og við nærliggjandi svæði.
• Að fá fram frjóar en um leið raunhæfar hugmyndir um framtíðarnýtingu og skipulag Háskólasvæðisins.
• Að samgöngur og uppbygging á svæðinu verði samtvinnuð, þar sem lögð sé áhersla á almenningssamgöngur og göngu- og hjólaleiðir.


Keppnisformið er hugmyndakeppni, sbr. samkeppnisreglur Arkitektafélags Íslands. Hugmyndasamkeppnin er opin öllum sem uppfylla skilyrði keppnislýsingarinnar.

Samkeppnisgögn afhent: 21. febrúar 2014
Fyrirspurnarfrestur: 4. apríl 2014
Skilafrestur tillagna: 12. maí 2014
Niðurstaða dómnefndar áætluð: í byrjun júní 2014

Heildarfjárhæð verðlauna verður allt að kr. 6.500.000, án vsk. Veitt verða þrenn verðlaun, 1., 2. og 3. verðlaun og verða 1. verðlaun eigi lægri en kr. 3.250.000. Auk þess er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að kr. 1.500.000, án vsk.

Sjö manna dómnefnd skipa eftirtaldir:


Tilnefndir af verkkaupum:
Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur, formaður.
Trausti Valsson, skipulagsfræðingur og prófessor, Háskóla Íslands.
Anna Dóra Sæþórsdóttir, landfræðingur og dósent, Háskóla Íslands.
Nikulás Úlfar Másson, arkitekt og skrifstofustjóri, Reykjavíkurborg.

Tilnefndir af Arkitektafélagi Íslands:
Anna María Bogadóttir, menningarfræðingur og arkitekt FAÍ.
Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt FAÍ.

Tilnefnd af Félagi íslenskra landslagsarkitekta:
Hlín Sverrisdóttir, landslagsarkitekt FÍLA og skipulagsfræðingur SFFÍ.
Ritarar dómnefndar:
Sigurlaug I. Lövdahl, skrifstofustjóri, Háskóla Íslands.
Björn Ingi Edvardsson, verkefnastjóri, Reykjavíkurborg.

Nánari upplýsingar um samkeppnina má finna á hugmyndasamkeppni.is.
















Yfirlit



eldri fréttir