Fréttir

24.2.2014

Opið hús í Listaháskóla Íslands



Laugardaginn 1. mars kl. 12-16 kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Listaháskólinn kynnir allar námsbrautir sínar í húsnæði skólans að Þverholti 11. Kynningardagskrá frá kl. 12-15:30.

Alls eru námsbrautirnar 17, 12 á bakkalárstigi og 5 á meistarastigi. Nemendur, kennarar og starfsfólk skólans taka á móti gestum og svara spurningum, inntökumöppur nemenda verða til sýnis og kynningar verða á öllum námsbrautum á bakkalár- og meistrastigi.

Dagskrá
12:00 Fríða Björk Ingvarsdóttir rektór býður gesti velkomna
         Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra setur Háskóladaginn
12:15 Kór tónlistadeildar LHÍ
13:00 Suður- Amerísk tónlist
14:00 Suður – Amerísk tónlist
15:00 Baldvin Tryggvason leikur á klarinett

Verk nemenda myndlistardeildar og hönnunar- og arkitekúrdeildar verða til sýnis.
Myndbandsverk frá nemendum sviðslistadeildar verður sýnt í rútunni sem gengur frítt á milli LHÍ, HÍ og HR þennan dag.

Námsbrautarkynningar í fyrirlestrarsal B

13:00 Tónlistardeild

13:30 Listkennsludeild
14:00 Hönnunar- & arkitektúrdeild
14:30 Myndlistardeild
15:00 Sviðslistadeild

Fríar rútuferðir verða á milli LHÍ, HÍ og HR
Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst kynna námsframboð sitt í húsnæði HR í Nauthólsvík. Háskóli Íslands kynnir námsframboð sitt í Aðalbyggingu, Háskólatorgi, Öskju og Háskólabíói. Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskólinn Íslands kynna námsframboð sitt á Háskólatorgi HÍ.

Þess má geta að í HR kemur Kór tónlistardeilda fram kl. 14:00 og kl. 15:00 verður Kjartan Ólafsson, prófessor í tónsmíðum, með Calmus Automata ásamt Védísi Kjartansdóttur dansara. Calmus Automata er byltingakennd nýjung í hugbúnaði sem semur og spilar tónlist á rauntíma með aðstoð gerfigreindar og getur verið stjórnað og stýrt af tónskáldum, dönsurum og í sýndarveruleikanum.

Kynningar á landsbyggðinni
19. mars- Egilsstaðir
20. mars- Akureyri
26. mars- Selfoss

27. mars- Ísafjörður
















Yfirlit



eldri fréttir