Á Mannamóti ÍMARK 26. febrúar kl. 17:15 á Loftinu, Austurstræti 9 verður
skoðað hvað er að gerast á fjölmiðlamarkaðnum á Íslandi. Frummælendur verða Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Capacent og Sigmar Vilhjálmsson(Simmi), stofnandi BravóTV.
Einar Einarsson, framkvæmdastjóri Capacent hefur starfað á sviði markaðsrannsókna í 20 ár og mun fara almennt yfir hvernig fjölmiðlar eru mældir hér á landi. Hann mun einnig benda á hvernig tæknin hefur þróast við slíkar rannsóknir síðustu árin. Einar er víðskiptafræðingur frá HÍ og með MBA menntun frá HR.
Sigmar Vilhjálmsson(Simmi), stofnandi BravóTV mun síðan koma og kynna næsta þróunarstig í fjölmiðlun á Íslandi. Hann ætlar að kynna sjónvarpsstöðina Bravó, sem er nýr fjölmiðill fyrir ungt fólk. Eins og Simmi orðar það "Ungt fólk horfir ekki á sjónvarp, af því að það er ekki verið að framleiða sjónvarpsefni fyrir það!"
Einnig mun Simmi kynna sjónvarpsstöðina Miklagarð sem er dægurmála fjölmiðill, "Mikligarður er svo innilega ekki sjónvarpsmarkaður að ég vil ekki nefna sjónvarpsmarkaðinn, þess vegna nefni ég ekki sjónvarpsmarkaðinn!"
Í lokin býðst að spyrja og ræða við bæði Einar og Simma, nánar um málefnin og þeirra sýn á þessum lifandi og spennandi markaði.
Hvert Mannamót hefst á stuttri kynningu, þar sem sagt er frá reynslusögu
fyrirtækis, rannsókn, hugmyndafræði eða öðru áhugaverðu. Þetta er
breytilegt hvert sinn en byrjar kl.17.15 svo fólk skal mæta tímalega.
Athugið að þessi viðburður er ókeypis og ekki þarf að skrá sig - bara
mæta!
Samstarfssamtök; ÍMARK, Almannatengslafélagið, SÍA, SVEF,
Hönnunarmiðstöð Íslands, Ský, FVH, RUMBA Alumni, MBA félag HÍ,
Stjórnvísi, Innovit, KVENN, SFH, FKA